Vertu memm

Markaðurinn

ÓJ&K – ÍSAM opnar nýja vefverslun fyrir viðskiptavini

Birting:

þann

ÓJ&K – ÍSAM opnar nýja vefverslun fyrir viðskiptavini

Skjáskot af nýju vefverslun ÓJ&K – ÍSAM þar sem áhersla er lögð á einfaldari og öruggari pantanir.

ÓJ&K – ÍSAM hefur opnað nýja og endurbætta vefverslun sem ætlað er að gera pantanir einfaldari og þægilegri fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Með nýju lausninni er markmiðið að bæta þjónustu, auka öryggi og gera viðskiptavinum kleift að sinna pöntunum á skilvirkari hátt.

Í tengslum við opnunina hefur verið tekin upp rafræn auðkenning til að styrkja öryggi kerfisins. Af þeirri ástæðu þurfa allir viðskiptavinir að sækja um aðgang að vefversluninni á ný, jafnvel þótt þeir hafi áður haft aðgang að eldri lausn.

Dregið um PING golfsett

Til að fagna opnuninni verður dregið úr hópi þeirra sem skrá sig í nýju vefverslunina fyrir 20. apríl. Einn heppinn þátttakandi hlýtur glæsilegt PING golfsett sem nýtist vel þegar sumarið gengur í garð.

Viðskiptavinir geta sótt um aðgang að nýju vefversluninni á vef ÓJ&K – ÍSAM. Þeir sem þurfa aðstoð við skráningu eða hafa spurningar geta haft samband með tölvupósti á [email protected] eða í síma 535-4000.

Smellið hér til að skoða nýju vefverslunina.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið