Markaðurinn
ÓJ&K–ÍSAM og Sjöstrand hefja öflugt samstarf

Frá vinstri: Viktor Bjarki Arnarsson, eigandi Sjöstrand, Marta Rut Pálsdóttir, sölustjóri Kaffitár, Gunnar Steinn Jónsson, eigandi Sjöstrand , Ólafur Páll Johnson, markaðsstjóri ÓJ&K-ÍSAM.
ÓJ&K–ÍSAM, eigandi Kaffitárs, og Sjöstrand hafa gert með sér samstarfssamning sem markar mikilvægt skref í sókn beggja fyrirtækja á íslenskum markaði.
Samstarfið felur í sér að ÓJ&K–ÍSAM mun annast dreifingu og vörustýringu, auk þess að koma að sölu á vörum Sjöstrand til helstu verslanakeðja landsins, sem og á fyrirtækja- og stóreldhúsamarkaði. Með þessu skapast spennandi tækifæri til aukinnar útbreiðslu og eykst sýnileiki Sjöstrand um allt land.
Umhverfisvænu hylkin Sjöstrand eru þau fyrstu sinnar tegundar í heiminum og taka sjálfbærni skrefinu lengra. Hylkin eru náttúruleg og framleidd úr úrgangsefni sem verður til við kaffiristun – kaffihylki gerð úr kaffi. Kaffið í hylkjunum er að auki lífrænt ræktað og Fairtrade-vottað, sem fellur einstaklega vel að stefnu Kaffitárs, þar sem kaffið er keypt beint frá býli.
Samstarfið styrkir jafnframt stöðu beggja aðila á fyrirtækjamarkaði. Með sameiginlegu framboði Kaffitárs og Sjöstrand verður nú hægt að bjóða viðskiptavinum heildstæða og öfluga lausn sem mætir fjölbreyttum þörfum fyrirtækja og stofnana. Lögð er áhersla á gæði, einfaldari innkaupaferla og betri þjónustu.
ÓJ&K–ÍSAM, elsta heildsala landsins, býr yfir sterkum innviðum og víðtækri reynslu í dreifingu og sölu á íslenskum markaði, sem mun nýtast vel við uppbyggingu vörumerkis Sjöstrand. Um leið skapar samstarfið aukinn kraft til að þjónusta viðskiptavini með skilvirkari og markvissari hætti. Samstarfið endurspeglar sameiginlega framtíðarsýn fyrirtækjanna um vöxt, fagmennsku og langtímahugsun og leggur grunn að metnaðarfullum markmiðum fyrir komandi ár.
Marta Rut, sölustjóri Kaffitárs
„Við hjá Kaffitár og ÓJ&K-ÍSAM erum mjög spennt fyrir þessu nýja samstarfi við Sjöstrand, sem deilir okkar skuldbindingu við umhverfisvænar lausnir. Með sameiningu okkar krafta erum við að stefna að því að skapa nýjar og spennandi vörur og þjónustu, við sjáum fyrir okkur skemmtilega viðbót í fyrirtækjalausnir þar sem við getum núna boðið upp á allar lausnir fyrir fyrirtæki af öllum stærðum.
Við sjáum það fyrir okkur að þessi samvinna muni leiða til aukinnar sölu og skapa mikil samlegðaráhrif sem koma báðum fyrirtækjum og samfélaginu til góða. Kaffitár og Sjöstrand á skrifstofuna, allt sem þarf.“
Gunnar Steinn, eigandi og framkvæmdastjóri Sjöstrand:
„Við hjá Sjöstrand erum gríðarlega spennt fyrir þessu samstarfi. Við nýtum verðmæta sérþekkingu ÓJ&K–ÍSAM á sviði birgðarstýringar og dreifingar og setjum aukinn fókus á uppbyggingu Sjöstrand á íslenskum markaði. Ég sé mikil tækifæri á fyrirtækjamarkaði í samstarfi við Kaffitár, þar sem fyrirtæki og starfsfólk gera sífellt meiri kröfur um góðar og fjölbreyttar kaffilausnir.
Það veitir okkur samkeppnisforskot að geta boðið hylki, baunir eða malað gæðakaffi ásamt öllum nauðsynlegum vélbúnaði frá sama aðila. Mín uppáhalds lausn á skrifstofuna væri Sjöstrand fyrirtækjavélin ásamt heiðarlegri uppáhellingu af Skuggatári, nýju blöndunni frá Kaffitár.“
-
Markaðurinn4 dagar síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Markaðurinn11 klukkustundir síðanGlæsileg sýning í Höllinni
-
Food & fun6 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanÆtti svona saké viðburður líka heima á Íslandi?
-
Markaðurinn5 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Keppni2 dagar síðanHelga Signý sigraði í Barlady keppninni í annað sinn – Myndir
-
Markaðurinn4 dagar síðanMinnkum matarsóun
-
Markaðurinn5 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma





