Vertu memm

Markaðurinn

Nýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum

Birting:

þann

Supermeals - Supersoft

Sífellt fleiri fyrirtæki, mötuneyti og skólar leita leiða til að einfalda máltíðapantanir, bæta yfirsýn og draga úr matarsóun. Nýtt íslenskt kerfi, Supermeals, hefur vakið athygli fyrir að sameina þessa þætti í einni heildstæðri og sveigjanlegri lausn.

Supermeals er stafrænt pöntunarkerfi sem gerir fyrirtækjum, veitingastöðum og mötuneytum kleift að skipuleggja máltíðir fyrirfram, fylgjast með notkun og fá nákvæma yfirsýn yfir pantanir áður en matreiðsla hefst. Með því að færa pantanir í skipulagt rafrænt ferli minnkar handavinna og líkur á mistökum, á sama tíma og framleiðsla verður markvissari.

Minni sóun og betri yfirsýn með fyrirfram skipulögðum pöntunum

Ein helsta áskorunin í mötuneytisrekstri er ófyrirséð eftirspurn sem oft leiðir til offramleiðslu og matarsóunar. Með Supermeals er eldað út frá raunverulegum pöntunum, sem stuðlar að betri nýtingu hráefna, lægri kostnaði og sjálfbærari rekstri. Fyrirfram skilgreindir pöntunarfrestir gera rekstraraðilum kleift að skipuleggja framleiðslu af meiri nákvæmni og draga þannig verulega úr sóun. Svo ekki sé nú talað um að fækka símtölum og tölvupóstum.

Kerfið býður upp á skýra yfirsýn yfir matseðla til lengri tíma, pantanir með lokafrestum og möguleika á að taka tillit til ofnæmis, óþols og sérfæðis. Fyrirtæki og rekstraraðilar fá jafnframt sundurliðaðar upplýsingar um notkun og kostnað, sem einfaldar áætlanagerð og reikningahald.

Supermeals er hannað með samþættingar í huga. Kerfið býður upp á vefþjónustur sem gerir notendum kleift að sækja og senda gögn í önnur kerfi, svo sem bókhaldskerfi. Sömu vefþjónustur nýtast einnig til að birta matseðla á skjám, innri kerfum eða vefsíðum, þannig að upplýsingar eru alltaf uppfærðar á öllum stöðum.

Lausnin hefur einnig reynst vel í skólaumhverfi. Þar geta nemendur skráð sig inn í mötuneytiskerfið með PIN-númeri á iPad. Neysla er skráð sjálfkrafa og rekstraraðilar fá skýra mynd af raunverulegri eftirspurn. Þetta einfaldar afgreiðslu, eykur yfirsýn og skapar skilvirkara og öruggara flæði í skólamötuneytum.

Með aukinni áherslu á sjálfbærni, skilvirkni og stafrænar lausnir má búast við að slík kerfi verði sífellt mikilvægari hluti af daglegum rekstri mötuneyta og veitingaþjónustu. Supermeals sýnir hvernig tækni getur einfaldað ferla, dregið úr sóun og tengt saman ólík kerfi á snjallan og hagkvæman hátt.

Hér má skoða kerfið nánar: www.supermeals.is

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið