Frétt
Nýr norrænn matur í Norræna húsinu
Nú um helgina verður Matur og Málþing í Norræna húsinu á vegum þess og í samstarfi við Slow Food Reykjavík á laugardaginn 9. maí klukkan 14°° – 17°°. Yfirskriftin er svæðisbundin matarmenning á Íslandi, staða og möguleikar til þróunar í framtíðinni.
Nýstárlegt smáréttahlaðborð verður í boði Norræna hússins, úr íslensku gæða hráefni frá ýmsum landshlutum að hætti Gunnars Karls Gíslasonar á veitingahúsinu Dill. Nokkrir framleiðendur kynna afurðir sínar, má þar nefna Matarkistu Skagafjarðar, Bíó bú, Hríseyjar kræklingur, heimaafurðir frá Hásli og Leirpottinn, hannaðan af Guðfinnu Mjöll og Brynhildi Pálsdóttur.
Hér eftirfarandi er dagskráin í heild sinni:
Matur og Málþing
Staður: Norræna húsið
Dagsetning: 9. mai 2009
Tími: 14.00-17:00
Fundarstjóri: Þröstur Haraldson, ritstjóri Bændablaðsins.
14:00
Mads Holm og Dominique Pledel Jónsson bjóða gesti velkomna.
14:10-15:00
Umhverfi og aðkoma stjórnvalda
-
Kjartan Hreinsson MAST,
Lagalega umhverfið frá sjónarmiði hollustu- og vinnuöryggi.
-
Sjöfn Sigurgísladóttir Forstjóri Matís
Staða mála fyrir smáframleiðendur og framtíðarsýn á Íslandi og í nágrannalöndum. -
Marteinn Njálsson Beint frá Býli samtaka
Reynsla bænda og samtökin Beint frá Býli.
15:00
Nýstárlegt smáréttahlaðborð, í boði Norræna hússins.
15:30
Hver er staðan og hverju þarf að breyta?
-
Nanna Rögnvaldardóttir Matarfrumuður
Hverjar eru hefðirnar og hvað er eftir af þeim?
-
Þórarinn Jónsson Bóndi á Hálsi í Kjós
Get ég fengið kjötið mitt fyrir viðskiptavini mína?
-
Ari Þorsteinsson – Í ríki Vatnajökuls
Þróun matvæla, Ecomuseum og heilræn nálgun.
Að kvöldi 9. maí í Norræna húsinu:
Veitingastaðurinn Dill býður uppá matseðil undir þemanu, „Matarkista Skagafjarðar“. Gunnar Karl á Dill, er sá kokkur í Reykjavík sem hefur hvað mest unnið með hráefni úr sveitum landsins undir formerkjum Nýr norrænn matur.
Með málþinginu viljum við bæði efla vitund og kynna hvaða tækifæri felast í sölu á matvöru beint frá bónda til neytenda. Ennfremur viljum við hvetja til þess að hægt verði að rekja vörur í verslunum og á veitingahúsum beint til framleiðenda.
-
Frétt3 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Frétt7 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Keppni4 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni6 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni4 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or5 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn5 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars






