Freisting
Nýr meðlimur í kokkalandsliðinu
|
|
Nýr meðlimur í landsliði matreiðslumanna hefur verið ráðin og er það Þórarinn Eggertsson yfirmatreiðslumaður á veitingastaðnum Salt. Þórarinn eða Tóti eins og hann er kallaður, náði þeim merka árangri að hreppa titilinn „Matreiðslumaður ársins 2005„.
Í samtali við fyrirliða landsliðsins hann Bjarna G. þá er landsliðið komið í sumargírinn og verða „léttir“ fundir teknir til að fara yfir undirbúning ofl. fyrir Ólympíuleikana 2008, en það er aldrei að vita nema fleiri verkefni koma inn í planið síðar, sagði Bjarni léttur í lund.
Eins eru smá breytingar í landsliðinu, en þeir félagar Sigurður Gíslason og Alfreð Ómar hafa fært sig á hliðarlínuna vegna anna í starfi, en koma samt til með að vera sérlegir ráðgjafar landsliðsins við undirbúning og hönnun kalda borðsins í Erfurt ofl.
Landsliðið er þá skipað af eftirtöldum aðilum:
-
Bjarni Gunnar Kristinsson, Yfirmatreiðslumaður Grillið Radissonsas Hótel Saga. Fyrirliði
-
Ragnar Ómarsson, Yfirmatreiðslumaður DOMO, Þjálfari
-
Gunnar Karl Gíslason, Yfirmatreiðslumaður Vox restaurant
-
Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran, aðstoðar Yfirmatreiðslumaður Sjávarkjallarinn
-
Eyþór Rúnarsson, yfirmatreiðslumaður Siggi Hall á Óðinsvéum
-
Örvar Birgisson, Bakari Nýja Kökuhúsinu
-
Þórarinn Eggertsson, Yfirmatreiðslumaður Salt, Radissonsas Hótel 1919
Sérlegir ráðgjafara landsliðsins:
-
Sigurður Gíslason, Vox Nordica hotel og fljótlega yfirmatreiðslumaður Turnsins
-
Alfreð Ómar Alfreðsson, matreiðslumeistari, GV heildverslun
Eins er hægt að sjá árangur landsliðsins síðastliðin ár, með því að smella hér
Ljósmynd tók Bjarni G. Kristinsson, fyrirliði landsliðsins
-
Keppni3 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Frétt6 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Markaðurinn13 klukkustundir síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT




