Vertu memm

Frétt

Noma svarar gagnrýni: „Endurspeglar ekki staðinn eins og hann er í dag“

Birting:

þann

Noma

Mynd úr safni: facebook / Noma

Veitingastaðurinn Noma hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem teymið stígur fram og bregst við þeirri umræðu sem skapast hefur um starfsemi staðarins að undanförnu.

Eins og áður hefur komið fram á Veitingageirinn.is hefur René Redzepi ákveðið að stíga til hliðar frá daglegum rekstri. Í nýrri tilkynningu er hins vegar megináherslan lögð á stöðu Noma í dag og þá þróun sem átt hefur sér stað innan veggja staðarins.

Sjá einnig: Alvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma

Í yfirlýsingunni segir að sú mynd sem dregin hefur verið upp opinberlega undanfarið gefi ekki rétta sýn á núverandi starfsemi.

„Margt af því sem hefur verið sett fram opinberlega undanfarið endurspeglar ekki Noma eins og það er í dag, né þá fjölmörgu einstaklinga sem hafa lagt sitt af mörkum til raunverulegra umbóta,“

segir í tilkynningunni.

Teymið leggur áherslu á að um sé að ræða vinnustað sem hafi tekið miklum breytingum á síðustu árum, þar sem markvisst hafi verið unnið að því að bæta starfsumhverfi og styrkja innviði. Jafnframt sé öllum ábendingum og áhyggjum tekið alvarlega.

Sjá einnig: René Redzepi stígur til hliðar frá Noma

Í tilkynningunni er einnig dregið fram að sterkt og reynslumikið teymi standi nú að baki starfseminni.

„Það sem stendur eftir er einstakt teymi sem hefur vaxið og þróast með tímanum,“

segir þar, og undirstrikar að sú vegferð sem farin hefur verið innan fyrirtækisins sé afrakstur margra.

Fram kemur að á undanförnum árum hafi verið innleiddar fjölmargar aðgerðir með það að markmiði að tryggja öruggt, virðingarríkt og uppbyggilegt starfsumhverfi. Sú vinna sé þó ekki lokið.

„Þetta er áframhaldandi ferli. Við erum staðráðin í að byggja upp sterka og ígrundaða starfsemi þar sem matargerðin leiðir áfram og við getum haft jákvæð áhrif á framtíð greinarinnar,“

segir í tilkynningunni.

Að lokum þakkar Noma-teymið fyrir stuðninginn og segist hlakka til að halda áfram að þróa starfsemi sína og deila henni með gestum, bæði á alþjóðlegum vettvangi og heima fyrir.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið