Nemendur & nemakeppni
Myndir frá sveinsprófi í bakaraiðn
Sveinspróf í bakaraiðn var haldið í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi dagana 12. og 13. maí 2015. Var það samdóma álit fagmanna og gesta að prófin í ár væru með allra besta móti, og fari batnandi á ný eftir mikla lægð síðustu ár.
Mikil fjölgun hefur verið á nýjum nemum í bakaraiðn og mikill metnaður einkennir ungafólkið. Próftakendur voru að þessi sinni sex og koma frá eftirfarandi bakaríum:
| Nafn nema | Nafn meistara | Nafn fyrirtæki |
| Anna María Guðmundsdóttir | Ragnar Hafliðason | Mosfellsbakarí ehf |
| Birgir Þór Sigurjónsson | Bergur Magnús Sigmundsson | Goðaland ehf |
| Davíð Þór Vilhjálmsson | Magnús Sigurðsson | Gæðabakstur ehf |
| Hálfdán Þór Þorsteinsson | Róbert Óttarsson | Sauðárkróksbakarí ehf |
| Henry Þór Reynisson | Reynir Carl Þorleifsson | Reynir bakari ehf |
| Íris Björk Óskarsdóttir | Hilmir Hjálmarsson | Sveinsbakarí ehf |
Prófverkefnið í ár var:
- Prófið hófst á skriflegu prófi í 40 mínútur
- 2 tegundir af matbrauði – 12 stk. af tegund
- 4 tegundir af smábrauðum – Alls 120 stk.
- 3 tegundir af stórum vínarbrauðum og
- 3 tegundir af sérbökuðum vínarbrauðum
- 10 stk. Sandkökur
- Blautdeig – 3 tegundir
- Rúlluterta með smjörkremi
- Terta að eigin vali
- 10 hringja Kransakökustrýta og kransakonfekt.
- Auk þess er skilað vinnumöppu, og tillit tekið til frágangs og vinnuhraða.
Nemarnir höfðu 9 tíma til þess að klára prófið og stilla því upp, 3 klukkutíma og 40 mínútur tíma fyrri daginn og 6 klukkutíma þann seinni.
Bjóðum við nýja sveina hjartanlega velkomna í hóp fagmanna og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.
Myndir: Gunnar Þórarinsson bakari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir er Vínþjónn ársins 2026
-
Markaðurinn6 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Frétt4 dagar síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn2 dagar síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu
-
Markaðurinn4 dagar síðanSkyrunnendur fá tvær nýjar ástæður til að gleðjast


























