Markaðurinn
MS kynnir tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu í byrjun mars
Kotasælan frá MS er í uppáhaldi hjá mörgum enda bragðmild, próteinrík og fitulítil og því einstaklega hollur og góður valkostur ofan á brauð, hrökkbrauð og í hvers kyns matargerð.
Við kynnum nú til leiks tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu sem taka hversdagsmatinn upp á næsta stig.
Kotasæla með chili sriracha færir fólki smá krydd í tilveruna og kitlar bragðlaukana með bragðmiklu en ekki yfirgnæfandi bragði. Fullkomin á brauð, í vefjur, með grænmeti eða beint úr dósinni þegar þú ert í stuði.
Kotasæla með hvítlauk og pipar er mildari en sú fyrri en samt full af karakter, klassísk og bragðgóð með ljúfum hvítlaukskeim og örlitlum pipar. Hér er komin frábær viðbót í salöt, með kexi, eggjum og í alls kyns matargerð.
Þessar spennandi nýjungar eru á leiðinni í sölu í byrjun mars, svo nú er ekki annað í stöðunni en að finna sína uppáhalds og gera daginn aðeins bragðbetri.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Keppni4 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Frétt6 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Frétt2 dagar síðanKóríanderfræ innkölluð eftir að hættulegt efni greindist
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanEldur er aftur fáanlegur fyrir ostunnendur






