Uppskriftir
Ljúffeng, litfögur og spicy vegan súpa
Það var aldrei inni í myndinni hjá Laufeyju Bjarnadóttur að gerast matreiðslumaður þegar hún var yngri. Hún útskrifaðist þó sem slíkur í lok síðasta mánaðar og tók nýlega við stöðu vaktstjóra á veitingastaðnum Kopar þar sem hún var á samningi sem nemandi.
„Í uppvaskinu fylgdist ég alltaf með kokkunum og fannst starf þeirra mjög heillandi auk þess sem ég hjálpaði þeim stundum að skera grænmeti og vakúmpakka. Kokkarnir hvöttu mig oft til að koma á samning en ég þorði það ekki þótt mig langaði virkilega til þess. Ég hélt nefnilega að ég kynni ekkert að elda.“
sagði Laufey í skemmtilegu viðtali sem birtist í Fréttablaðinu
hér.
Með fylgir girnileg spicy vegan súpa fyrir 4 sem að Laufey gaf okkur leyfi að birta hér:
2 sætar kartöflur
3 hvítlauksgeirar
1 lítill engifer
1 rauður chili
5 gulrætur
½ lítri appelsínusafi, t.d. Trópí
1 lítri vatn
1 krukka kókosmjólk
1 msk. karrí
1 tsk. túrmerik
1 tsk. kúmin
1 tsk. timían
1 tsk. paprikukrydd
½ tsk. cayenne-pipar (má sleppa)
Salt og pipar eftir smekk
Ofan á súpuna:
Smátt skorinn vorlaukur
Saxaður ferskur kóríander
Muldar salthnetur
Límónubátar
Aðferð:
Skerið sætar kartöflur, gulrætur, engifer, hvítlauk og chili í bita. Sjóðið vel í potti með vatni, appelsínudjús og kókosmjólk. Á meðan þetta sýður er kóríander saxaður og vorlaukur skorinn smátt. Skerið límónu í báta og myljið salthneturnar. Allt sett í
sér skálar.
Maukið grænmetið í pottinum með matvinnsluvél eða töfrasprota. Kryddað með karríi, kúmini, timíani, paprikukryddi, cayennepipar og salti og pipar.
Súpan er borin fram og hver og einn fær sér kóríander, vorlauk, salthnetur og límónu ofan á eftir smekk.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn1 dagur síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Frétt7 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun13 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn1 dagur síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Keppni15 klukkustundir síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau





