Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Lét drauminn sinn rætast og opnar alvöru franska kökuverslun í Reykjavík
Fyrir rúmlega ári setti Aurore Pélier Cady af stað söfnunarsíðu á Karolinafund.com í von um að láta draum sinn rætast að opna franska kökuverslun hér á Íslandi.
Það tókst heldur betur vel og safnaðist um 10 þúsund evrur eða tæp 1.4 milljón ísl. kr. Aurore opnaði kökuverslunina Sweet Aurora, 14. júlí sl., í kjallarahúsnæði við Bergstaðastræti 14 í Reykjavík. Opnunartími er frá miðvikudögum til sunnudaga frá klukkan 09 til 17. Aurore hefur gert leigusamning í þrjá mánuði og vonast til að reksturinn muni ganga það vel að hún geti gert langtímaleigusamning.
Aurore Pélier Cady er franskur pastry chef, en hún lærði fræðin sín í heimsþekkta skólanum Institut Paul Bocuse og starfaði í meira en áratug á flottum hótelum og veitingastöðum í París, á borð við Hotel George V eða KL Patisserie svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrir þremur árum síðan þá ákvað hún flytja til Íslands, en hún hefur t.a.m. starfað hjá Slippnum í Vestmannaeyjum, Vox á Hilton hótelinu, íslenska Michelin veitingastaðnum Dill, en Gísli Matt og Gunni Kalli kenndu Aurore meðal annars allt um íslenskar jurtir og hvernig á að nota þær í matargerð.
- Sweet Aurora Reykjavík
Í boði í kökuversluninni Sweet Aurora eru dæmigerðu frönsku sætabrauðsgóðgætin eins og sítrónutertuna, Saint Honoré (líka nefnd St. Honoratus), makkarónurnar og franskar hefðbundnar kökur eins og Galette o.fl. Sjá matseðilinn hér.
Viðtal við Aurore Pélier:
Meðfylgjandi myndir eru frá @kevinpages og @andrigeirjónasson og eru birtar hér með góðfúslegu leyfi þeirra.
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt2 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð










