Vín, drykkir og keppni
Le Tribute Bransakvöld á Monkey’s & Kokteilbarnum á sunnudagskvöld
Líf og fjör verður á sunnudagskvöld þegar efnt verður til Le Tribute Bransakvölds á Monkey’s & Kokteilbarnum sunnudaginn 22. febrúar klukkan 20.00. Kvöldið er sérstaklega ætlað fólki í veitingageiranum og má búast við bæði góðri stemningu og spennandi tilboðum.
Yfirbarþjónn staðarins, Kaja Brodecka, hefur sett saman sérstakan Le Tribute kokteilaseðil fyrir kvöldið. Veitingamenn fá að njóta 2 fyrir 1 tilboðs af seðlinum og gefst þannig kærkomið tækifæri til að smakka og njóta kokteilanna í lifandi og notalegri stemningu.
Tónlistarmaðurinn DJ Símon FKNHNDSM sér um að halda uppi stemningunni og lofar kvöldinu þar sem dansgólfið verður í aðalhlutverki þegar líður á nóttina.
Fyrir þá sem vilja hefja kvöldið fyrr býður Monkey’s einnig upp á 2 fyrir 1 tilboð fyrir veitingamenn af smáréttaseðli og steikarseðli staðarins. Þar gefst gestum kostur á að gera sér glaðan dag yfir mat og drykk áður en kokteilarnir og tónlistin taka yfir.
Að kvöldinu standa Drykkur heildsala í samstarfi við Monkey’s & Kokteilbarinn og er markmiðið að skapa vettvang þar sem fagfólk í greininni getur hist, notið og átt saman góða stund.
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or7 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni3 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn4 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Keppni7 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni






