Smári Valtýr Sæbjörnsson
Kökugerð bjargað af aftökulista Iðnaðarráðuneytisins – Loks fullgild iðngrein á Íslandi
Haustið 2013 hafði Iðnaðarráðuneytið til umfjöllunar breytingar á iðnaðarlögum nr. 42/1978. Var m.a. lagt til að þær iðngreinar sem hvorki væru kenndar á Íslandi né námsskrá væri til fyrir yrðu ekki lengur lögverndaðar.
Birti ráðuneytið
lista með þeim greinum sem það vildi leggja niður og var Kökugerð (konditor) meðal þeirra. Nám í kökugerð er að hluta til hægt að læra á Íslandi og hafa nokkrir tugir tekið sveinspróf í greininni í gegnum tíðina. Nokkur fyrirtæki hérlendis eru með nema á samningi og taka nemarnir verklega hlutann hér, en fara erlendis í skóla. Alltaf verður að fara í skóla og taka sveinspróf erlendis og fara flestir nemarnir til Ringsted í Danmörku.
Að frumkvæði Sigurðar Más Guðjónssonar formanns Konditorsambands Íslands, Jóhannesar Felixsonar þáverandi formanns LABAK og Níelsar S. Olgeirssonar formanns Matvís var ráðist í að þýða dönsku námskrárnar í bakaraiðn og kökugerð. Markmiðið var að bjarga kökugerð af aftökulista ráðuneytisins, því þótt kökugerð sé búin að vera löggilt iðngrein á Íslandi síðan árið 1927 hefur hvorki verið til námsskrá né starfslýsing og hæfnikröfur fyrir greina.
Starfsgreinaráð matvæla-, veitinga og ferðaþjónustugreina studdist við dönsku þýðinguna við gerð á starfslýsingu og hæfnikröfum fyrir kökugerð og lauk þeirri vinnu á haustmánuðum 2015. Menntamálastofnun hefur samþykkt þær og vistað í gagnagrunni sínum. Þetta veitir þeim sem eru með sveinsbréf í kökugerð (konditor) frá erlendum skólum möguleika á að sækja um viðurkenningu á sínu námi hér á landi þegar hún er fengin veitir hún þeim aðgang að meistaranámi og í framhaldi af því að sækja um meistarabréf í greininni. Sótt er um gagnkvæma viðurkenningu á starfsréttindum á vef IÐUNNAR fræðsluseturs.
„Hér er um afar mikilvægt réttindamál að ræða og má með sanni segja að loksins sé kökugerð orðin fullgild iðngrein á Íslandi 89 árum eftir að hún varð fyrst lögvernduð. Betra er seint en aldrei,“
segir Sigurður Már kökugerðarmeistari í samtali við veitingageirann.
Starfslýsingin og hæfnikröfurnar er hægt að lesa á vef Konditorsambands Íslands hér.
Eins og sést í
meðfylgjandi skjali hér frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu var lagt til að kökugerð yrði lögð niður.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Markaðurinn4 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Markaðurinn4 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt2 dagar síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
-
Markaðurinn2 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg




