Kokkur ársins
Keppnirnar Kokkur ársins 2024 og Grænmetiskokkur ársins 2024
Keppnirnar um Kokk ársins og Grænmetiskokk ársins verða haldnar í IKEA 11. til 13. apríl næst komandi.
Skráning er hafin á vef Klúbbs matreiðslumeistara.
Þátttaka er frí og eru allir matreiðslumenn hvattir til að taka þátt. Grunnhráefni í forkeppninni verða kynnt mánudaginn 8. apríl í eldhúsdeild IKEA og í beinni útsendingu á Facebook síðu Kokkalandsliðsins.
Forkeppnin fer svo fram fimmtudaginn 11. apríl þar sem keppendur þurfa að skila mynd og uppskrift ásamt því að matreiða rétt sinn, keppendur munu hafa 1,5klst til að afgreiða rétt sinn en keppendur mega koma með rétt sinn fulleldaðan ef þeim hugnast svo.
Úrslit í Grænmetiskokkur ársins fara fram föstudaginn 12. apríl og í Kokk ársins laugardaginn 13. apríl. Sigurvegarar í báðum keppnum vinna sér inn rétt til að taka þátt í norðurlandakeppnum, annars vegar í Nordic Green Chef og hins vegar í Nordic Chef sem haldnar verða í mars 2025.
Nánari upplýsingar verða sendar á keppendur við skráningu.
Mynd: Mummi Lú
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




