Frétt
Kaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð

F.v. Sigurður Máni Helguson, framkvæmdastjóri, Viðar Brink, markaðsstjóri, og Jón Anton Bergsson, yfirbakari Brauð & Co.
Mynd: aðsend
Drangar hafa gengið frá kaupum á öllu hlutafé í handverksbakaríinu Brauð & Co. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu, þar sem segir að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Samkvæmt tilkynningu rekur Brauð & Co. átta útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu og nemur ársvelta félagsins rúmlega 1,5 milljörðum króna. Félagið skilaði hagnaði á rekstrarárinu 2025 og hefur byggt upp sterka markaðsstöðu með áherslu á framúrskarandi gæði, handverk og einstaka upplifun viðskiptavina.
Þar kemur jafnframt fram að kaupverðið verði greitt með hlutabréfum í Dröngum og reiðufé.
Í tilkynningu Dranga segir að Brauð & Co. hafi frá stofnun skapað sér sérstöðu á íslenskum markaði með súrdeigsbrauði, fersku bakkelsi og metnaðarfullri vöruþróun.
„Við erum afar ánægð með þessi kaup. Brauð & Co. hefur byggt upp einstakt vörumerki og við ætlum að halda áfram á sömu braut, þar sem gæði vörunnar verða áfram höfð að leiðarljósi og hvergi slakað á þeim kröfum sem félagið er þekkt fyrir,“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, í tilkynningunni.
Drangar eru meðal stærstu verslunar- og þjónustufyrirtækja landsins og eiga meðal annars verslanakeðjurnar Nettó, SPAR, Prís, Krambúðina, Kjörbúðina og 10–11.
Verði samningurinn samþykktur af Samkeppniseftirlitinu mun Brauð & Co. bætast í hóp þeirra fyrirtækja sem starfa undir hatti Dranga.
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð



