Markaðurinn
Íslenskt lamb í sókn á veitingahúsum – Icelandic Lamb í samstarf við veitingageirinn.is
Hafliði Halldórsson matreiðslumaður er verkefnastjóri hjá Icelandic Lamb sem er markaðsskrifstofa sauðfjárbænda. Hafliði starfar náið með veitingamönnum að aukinni sölu lambakjöts og vill nú stórauka samstarfið og veita sérstaka athygli því sem vel er gert.
„Við vinnum að markaðsetningu og auknum virðisauka sauðfjárafurða í víðum skilningi hvort sem snýr að mat eða öðrum afurðum eins og td ull og skinnum. Við hvetjum til nýsköpunar og vöruþróunar og vinnum með fjölmörgum að slíkum verkefnum. Markaðsefni okkar er á ensku og er markvisst beint til ferðamanna í því skini að auka áhuga þeirra á íslensku lambi og afurðum úr því.
Formlegt samstarf Icelandic Lamb við veitingahús hófst fyrir ári síðan og nú eru um 40 veitingahús og hótel í samstarfinu.
Í starfinu vekjum við sérstaklega athygli á sögunni, sérstöðu íslenska sauðfjárstofnsins sem hér hefur verið einangraður í þúsund ár, hreinleika og gæða afurðanna. Við hlökkum til náins samstarfs við veitingamenn. Við viljum fá bransann til liðs við okkur í því að gera skemmtilega og gagnlega hluti fyrir sauðfjárbúskap og í leiðinni veitingahúsin sem eru afar stolt af íslenska lambinu og gera vel í því að bjóða ferðamönnum hágæða íslenskt lambakjöt. Við viljum styðja þau í því og leggjum þar til ákveðna stefnu, sterkt merki „logo“ og markaðsefni.
Formlegt samstarf Icelandic Lamb við veitingahús hófst fyrir ári síðan og nú eru um 40 veitingahús og hótel í samstarfinu.
2016 teljum við að hafi samstarfið strax skilað mælanlegum árangri því þá jókst í sala á lambakjöti til veitingahúsa eftir nokkurra ára samdráttarskeið. Veitingahúsum í samstarfi við okkur mun fjölga hratt frá og með þessari viku og markmið okkar er að fá fleiri til samstarfsins á allra næstu vikum og hvetjum veitingamenn til að hafa samband við okkur hafi þeir áhuga á formlegu samstarfi.“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn4 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn4 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn6 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar6 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð






