Food & fun
Íslenskir og Washington kokkar bjóða Íslenskt hráefni í D.C.
Íslenskir og Washington kokkar sameinuðust dagana 13-18 sept. og báru fram ferskt og náttúrulegt Íslenskt hráefni á veitingastöðum WASHINGTON, D.C. t.a.m. lambið, sjávarfang, osta og einmuna hið Íslenska skyrið okkar.
Kyningin var í þema „Food & Fun“ og að sögn Íslenkra kokka, þá tókst þessi kynning frábærlega, en einn af höfuðpaurunum var enginn annar en Sigurður Hall eða Siggi Hall eins og hann er kallaður, en hann hefur verið andlit og drifjöðrin í gegnum árin hér á Íslandi með hátíðina „Food & Fun“ sem flestir ættu að fara þekkja.
Þeir Íslensku kokkar sem fóru til WASHINGTON, voru eftirfarandi:
- Ívar Unnsteinsson frá Apótek bar grill en hann var á staðnum DC Coast
- Leifur Kolbeins frá La Primavera var á Ítalska staðnum Tosca
- Sigurður Gíslason, landsliðsmaður og yfirmatreiðslumaður á VOX var á staðnum Vidalia
- Eyþór Rúnarsson frá Veitingastaðnum Sigga Hall var á Marcel’s
- Sjálfur Siggi Hall frá Veitingastaðnum Sigga Hall var á franska staðnum Citronelle
- Steinar Þór Þorfinnsson frá Einari Ben var á Saint Ex sem er Amerískur Bistro staður
- Yfirkokkurinn á Perlunni hann Elmar Kristjánsson var á Ítalska staðnum Galileo
- Bjarni Gunnar Kristinsson landsliðsmaður og yfirkokkur í Grillinu á Hótel Sögu var á Equinox
- Birgir Ólafsson frá Hótel Holti var á 1789
- Stefán Úlfarsson frá 3 frökkum var á franska steikhúsinu „Mon Ami Gabi“
- Elvar Már Torfason frá Sjávarkjallaranum var á Signatures
-
Keppni6 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt4 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn5 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni1 dagur síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn11 klukkustundir síðanLíður að jólum
-
Pistlar7 klukkustundir síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




