Keppni
Íslenska bakaralandsliðið keppir í Stokkhólmi um helgina

Íslenska bakaralandsliðið sem fer utan til að keppa í Norðurlandakeppni í bakstri.
Talið frá vinstri: Ásgeir Þór Tómasson, þjálfari liðsins, Anna Magnea Valdimarsdóttir, Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir, Birgir Þór Sigurjónsson, Aðalheiður Dögg Reynisdóttir, Stefán Hrafn Sigfússon og Daníel K. Ármannsson.
Íslenska bakaralandsliðið tekur þátt í Norðurlandakeppni í bakstri sem fram fer í Stokkhólmi um næstu helgi. Í landsliðinu eru sex ungir bakarar sem hafa á undanförnum mánuðum æft sig í gerð ýmis konar brauðmetis og gerð skrautstykkis. Landsliðið keppir á vegum Landssambands bakarameistara, LABAK, við lið frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi.
Keppt er í þremur flokkum, brauðgerð, gerð sætra smástykkja og gerð skrautstykkis sem verður að vera að öllu leyti úr ætilegu hráefni. Þema keppninnar er kvikmyndir og er bökurunum frjálst að velja hvað sem er innan þess þema. Íslenska liðið valdi kvikmyndina Mary Poppins og eru öll keppnisstykkin tengd myndinni á einhvern hátt.
Þjálfari bakaralandsliðsins er Ásgeir Þór Tómasson, fagstjóri baksturs í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Hægt er að fylgjast með liðinu á Snapchat undir „landslidbakara“.
Bakaralandsliðið heldur utan á morgun fimmtudag.
Mynd: aðsend
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum



