Keppni
Íslandsmeistari í kokteilagerð náði 3. sæti á Evrópumótinu á Kýpur
Róbert Aron Proppé, Íslandsmeistari í kokteilagerð, hefur lokið keppni á Evrópumótinu í kokteilagerð sem fram fór í Protaras á Kýpur með glæsilegum árangri. Róbert hafnaði í 3. sæti og hlaut þar með bronsverðlaun í keppninni.
Sjá einnig: Róbert Aron Proppé keppir fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í kokteilagerð
Auk þess hlaut hann hinn eftirsótta Arnarverðlaun (Eagle Award), sem veitt er barþjóni undir 25 ára aldri með besta árangurinn og verðlaun fyrir besta árangurinn í skriflegu prófi. Ísland hefur eignast klárasta barþjón Evrópu.
Róbert keppti með kokteilinn Pillow Talk, sem inniheldur Gin Mare, Monin ástaraldin-puré, Monin kókoshnetusýróp og engiferbjór. Drykkurinn var skreyttur með greipaldinshýði og limeblaði festu með kokteilapinna og var keppnin í svokölluðum „Long Drink“ flokki.
Keppnin er krefjandi og metur ekki aðeins bragð og framsetningu heldur einnig fagleg vinnubrögð og fræðilega þekkingu keppenda, þar sem þátttakendur þurfa að standast skriflegt próf í kokteilafræðum, þar sem Róbert kom sá og sigraði.
„Ég er gríðarlega stoltur af þessum árangri Markmiðið var að taka þetta skrefinu lengra en í fyrra, og það er ótrúlega ánægjulegt að ná verðlaunasæti og fá viðurkenningu fyrir þekkinguna líka, ég er nánast orðlaus“
segir Róbert.
Með Róberti í för var Pétur Hafsteinn Úlfsson Kolka, sem er í þjálfarateymi Barþjónaklúbbs Íslands.
,,Við erum búnir að standa í ströngu með æfingar og við sjáum að afraksturinn að skila sér hér. Ég er gríðarlega stoltur af Róberti sem er búinn að sýna af sér mikinn metnað í gegnum ferlið, þetta er ekkert smá ánægjulegt“
Árangur Róberts er stórt skref fyrir íslenska kokteilamenningu og undirstrikar sterka stöðu íslenskra barþjóna á alþjóðavettvangi.
Hér má svo sjá Heildarúrslit:
1. sæti (gull) – Holland, Jan Dirk Huijser van Reenen
2. sæti (silvur) – Eistland, Laur Ihermann
3. sæti (brons) – Íslands, Róbert Aron Proppé
Arnarverðlaun: Íslands, Róbert Aron Proppé
Besti árangur í skriflegu prófi: Íslands, Róbert Aron Proppé
Besta kynningin: Holland, Jan Dirk Huijser van Reenen
Bestu faglegu vinnubrögðin: Spánn, Antonio Miñarro
Besta skreytingin: Ungverjaland, Mate Gabor Stenger
Besti kokteillinn: Finnland, Jan Lindgren
Flair:
1. sæti (gull) – Pólland, Kacper Smarz
2. sæti (silvur) – Tékkland, Štěpán Šimánek
3. sæti (brons) – Króatía, Dušan Janjatović
Myndir: aðsendar
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni5 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn6 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn5 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
-
Markaðurinn6 dagar síðanSnædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag
-
Pistlar4 dagar síðanSnædís Xyza Mae Ocampo skrifar – Liðið, fjölskyldan og baráttan á leið til Lyon








