Frétt
Hvítar trufflur fágætar í ár
Unnendur trufflu-sveppa, eða hallsvepps eða jarðkepps eins og hann heitir á íslensku, þurfa að kafa enn dýpra í vasa sína eftir skotsilfri en oft áður ætli þeir sér að kaupa sveppinn á Ítalíu í ár.
Skýringin er afar léleg uppskera og hefur hún ekki verið jafn lítil um árabil. Það þýðir að verðið fer upp úr öllu valdi en sveppurinn þótti dýr fyrir.
Sveppurinn grær í eikarskógum og nærist á trjárótum sem gerir leitina að þeim erfiðari en ella. Hér áður fyrr voru svín notuð til leitarinnar en þau reyndust full gráðug í sveppinn og gat fyrir vikið reynst erfitt að hafa stjórn á trufflu-áti þeirra. Í dag eru því notaðir sérstakir leitarhundar sem ekki éta sveppinn, sem er einkar dýr fæða, að því er fram kom í frétt í Morgunblaðinu á síðasta ári.
Að sögn forstjóra Tartufingros, Andrea Rossano, fyrirtækis sem flytur út hvíta trufflu sveppi, en þeir eru mun dýrari heldur en svartar trufflur, segir að ástandið sé afar slæmt vegna lítillar sprettu í ár og verðið í samræmi við það. Að sögn Rossano er uppskeran í ár um 75% minni heldur en á síðasta ári. Því muni 100 grömm af hvítri trufflu kosta 300-600 evrur, sem er 60-70% hærra verð heldur en í fyrra.
-
Frétt2 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Frétt6 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni3 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni3 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn4 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars






