Uppskriftir
Hinn fullkomni ostborgari
Fyrir mér er hinn fullkomni ostborgari eldaður á pönnu, úr ungnautahakki með 12-14% fituinnihaldi, með bræddum maribo osti, káli, þunnum sneiðum af lauk, tómatsneiðum, majónesi, tómatsósu og amerísku sinnepi, borinn fram í ristuðu litlu hamborgarabrauði, því það er ekkert sorglegra en hamborgari í of stóru brauði.
Ég elda mína hamborgara á sama máta og td In-N-Out borgarakeðjan í Bandaríkjunum, sem gerir að mínu mati bestu hamborgara í heimi, en sú eldunaraðferð felur í sér að lausmóta buff úr nautahakki, hita steypujárnspönnu á svimandi háan hita og nota svo flatan steikarspaða til þess að fletja borgarann kröftuglega niður á rjúkandi heita pönnuna svo hann verði mjög þunnur og fái sem besta brúnun.
Til þess að fletja borgarann sem best út þarf flatan steikarspaða og svo eitthvað annað til þess að þrýsta niður á steikarspaðann, en ég nota til þess þykkan spartlspaða sem er þægilegt að halda í.
Það er best að elda bara 1 borgara í einu með þessari aðferð og kveikja á viftunni á gufugleypinum því það mun koma svolítill reykur frá pönnunni, en hver borgari tekur ekki nema tæpar 2 mín að verða til. Það er því best að vera búinn að gera allt klárt áður en borgararnir eru steiktir.
Fyrir 2 tvöfalda ostborgara:
Ungnautahakk, 400 g *
Lítil hamborgarabrauð, 2 stk
Maribo ostur, 4 sneiðar
Íssalat eftir smekk
Laukur eftir smekk
Tómatur eftir smekk
Majónes
Tómatsósa
Amerískt Sinnep eftir smekk / Ég mæli með French´s
* Það er best að nota ungnautahakkið frá Norðlenska í þessa uppskrift þar sem því er ekki pakkað í pakkningar með lofttæmi, en þessar lofttæmdu pakkningar þjappa kjötinu of mikið saman og breyta áferðinni.
- Sneiðið lauk í þunnar sneiðar og tómata í aðeins þykkari sneiðar.
- Skiptið hakkinu í 4 parta og lausmótið 100 g kúlur/buff. Því minna sem er átt við kjötið, því mýkri verður borgarinn.
- Hitið steypujárnspönnu við frekar háan hita og ristið hamborgarabrauðin þar til þau eru gullinbrún.
- Setjið majónes í botninn, tómatsósu og sinnep í efra brauðið og hafið grænmetið klárt til hliðar.
- Nuddið ögn af olíu á pönnuna og bíðið þar til hún er rjúkandi heit. Setjið borgara á miðja pönnuna og notið stálspaðana til að fletja borgarann kröftuglega niður þar til hann er um 10 cm að flatarmáli. Saltið kjötið rausnarlega og piprið. Steikið í um 1-1.5 mín áður en þið snúið og setjið ost á kjötið. Setjið lok á pönnuna og bíðið í 20-30 sek þar til osturinn er bráðnaður.
- Færið kjötið á tilbúið hamborgarabrauð og endurtakið með restina af buffunum.
- Toppið kjötið með grænmetinu og njótið!
Mynd og höfundur: Snorri Guðmundsson | Matur & Myndir

-
Keppni4 dagar síðan
Fréttavaktin: Kokkur ársins 2025
-
Keppni4 dagar síðan
Gabríel Kristinn Bjarnason er Kokkur ársins 2025
-
Keppni4 dagar síðan
Stóra stundin runnin upp – Úrslitakeppni Kokkur ársins 2025 fer fram í dag – Myndaveisla frá forkeppni Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins
-
Frétt1 dagur síðan
Kaffisala bönnuð eftir kl. 14 – Nýjar reglur um koffín á veitingastöðum
-
Keppni4 dagar síðan
Andrés Björgvinsson er Gænmetiskokkur ársins 2025
-
Markaðurinn24 klukkustundir síðan
Tækifæri í Hveragerði – Bás laus í Gróðurhúsinu
-
Keppni5 dagar síðan
Keppninni Grænmetiskokkur ársins 2025 lokið – Úrslit kynnt í Bjórgarðinum á morgun
-
Keppni1 dagur síðan
Kokkakeppni þar sem notkun á örbylgjuofni er skylda – Glæsileg verðlaun í boði