Keppni
Heimsmeistarakeppni matreiðslumanna heldur áfram í Lúxemborg – Í dag er seinni keppnisdagur Íslenska Kokkalandsliðsins
Íslenska kokkalandsliðið hóf seinni keppnisdaginn sinn núna í hádeginu í Lúxemborg en keppnin hefur staðið yfir síðan á föstudag. Eins og kom fram í fréttum á sunnudag vann liðið til gullverðlauna fyrir fyrstu keppnisgreinina sína sem var “Restaurant of Nations” sem saman stendur af þriggja rétta heitum matseðli sem var eldaður fyrir 110 manns.
Sjá einnig: Íslenska Kokkalandsliðið vann til gullverðlauna

Súkkulaðistytta þessi er „center peace“ sem þarf að hafa á þjónustuborði liðsins við framreiðslu rétti dagsins.
Listaverk eftir Chidapha Kruasaeng og Ívar Kjartansson
Í dag er keppt í svokölluðu Chef’s Table sem er þrettán rétta fine-dining máltíð fyrir 12 manns og lýkur keppninni í dag ekki fyrir undir 22:00 að staðartíma. Úrslitin verða í þessari grein svo kynnt á morgun.
“Þetta kallar á úthald hjá okkar fólki, það er ágætt að hafa tvo daga á milli því það má varla minna vera á milli keppnisgreina sem þessara. Þessir dagar eru nýttir í stanslausan frágang, undirbúning og fíniseríngar.
Metnaður er mikill og kröfurnar sem liðið gerir til sjálfs síns eru mjög miklar.”
Segir Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara sem á og rekur Íslenska kokkalandsliðið. Þórir er á staðnum með liðinu ásamt nokkrum fulltrúum klúbbsins sem eru hópnum til aðstoðar.
Liðið ætlar að fylgja eftir framúrskarandi árangri liðsins frá síðustu Ólympíuleikum í Stuttgart þar sem þau fengu brons verðlaun fyrir samanlagðan árangur í byrjun árs 2020.
Sjá einnig: Íslenska Kokkalandsliðið á verðlaunapall – „Við erum þriðja besta kokkalandslið Í HEIMI!!“
Keppnismatreiðsla er í rauninni frádráttarkeppni og er fyrirkomulagið þannig að það byrja allir með 100 stig sem lækkar síðan með tilliti til snyrtimennsku, fagmennsku, útlits rétta og bragðs.
Gullframmistaða er 90 stig, silfur 80 stig og brons 70 stig.
Á mótinu í ár eru um 20 lönd sem taka þátt. Úrslit verða svo kynnt Lúxemborg á fimmtudaginn og liðið kemur svo heim á föstudag.
Íslenska Kokkalandsliðið skipa:
Þjálfari:
Ari Þór Gunnarsson Fastus
Fyrirliði:
Sindri Guðbrandur Sigurðsson veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Aron Gísla Helgason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Gabríel Kristinn Bjarnason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Ísak Darri Þorsteinsson, veitingastaðnum Tides
Erla Þóra Bergmann, Pálmadóttir veitingastaðnum Fjallkonan
Jakob Zarioh S. Baldvinsson, veitingastaðnum Sumac
Sveinn Steinsson, Eflu verkfræðistofu
Ísak Aron Jóhansson, Lux Veitingum
Chidapha Kruasaeng, Mosfellsbakarí og HR Konfekt
Ívar Kjartansson, veisluþjónustunni Rétturinum
Aþena Þöll Gunnarsdóttir, veitingastaðnum Fiskfélaginu
Hringur Oddsson, veitingastaðnum Tides
Marteinn Rastrick, Lux Veitingum
Myndir: Brynja Kr.Thorlacius
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Frétt6 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn2 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila














