Frétt
Heimilar heimaslátrun og dreifingu á markaði – Beint frá býli

Heimilar bændum að slátra sauðfé og geitum á búunum sjálfum og dreifa á markaði. Slík framleiðsla og dreifing hefur hingað til verið óheimil.
Mynd: úr safni
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um slátrun í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum sem heimilar bændum að slátra sauðfé og geitum á búunum sjálfum og dreifa á markaði. Slík framleiðsla og dreifing hefur hingað til verið óheimil.
Í reglugerðinni er kveðið á um að dýralæknar sinni heilbrigðisskoðunum bæði fyrir og eftir slátrun og mun kostnaður þess greiðast úr ríkissjóði.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
„Það hefur lengi verið kallað eftir því að bændum verði gert kleift að slátra sauðfé og geitum á búunum sjálfum og dreifa á markaði. Undanfarin tvö ár hefur átt sér stað umfangsmikil vinna í samráði við bændur og Matvælastofnun við að leita leiða til að heimila þessa framleiðslu þannig að uppfyllt séu skilyrði regluverks um matvælaöryggi og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði.
Þessi breyting sem við gerum í dag markar því tímamót enda felst í þessari breytingu mikilvægt tækifæri til að styrkja verðmætasköpun og afkomu bænda til framtíðar.“
Síðastliðið sumar undirrituðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda samkomulag um tilraunaverkefni um heimaslátrun. Á heildina litið gekk verkefnið vel og voru niðurstöður úr sýnatökum bænda góðar, en fjareftirlit var erfiðleikum bundið. Í reglugerðinni er því kveðið á um að opinberir dýralæknar sinni heilbrigðisskoðunum bæði fyrir og eftir slátrun og mun kostnaður vegna þess greiðast úr ríkissjóði.
Sjá einnig:
Helstu atriði reglugerðarinnar:
- Sérstakar undanþágur vegna slátrunar og stykkjunar í samræmi við kröfur Evrópuregluverksins, s.s. lágmarkskröfur til húsnæðis og aðstöðu.
- Kveðið er á um kröfur við aflífun, hollustuhætti við slátrun, innra eftirlit og förgun aukaafurða dýra.
- Til að auðvelda bændum að nýta sér þessa heimild þá hefur Matvælastofnun útbúið leiðbeiningabækling á grundvelli reglugerðarinnar þar sem skýrð eru út helstu skilyrði sem gerð eru til slátrunar og stykkjunar í litlum sauðfjár- og geitasláturhúsum. Leiðbeiningar Matvælastofnunar má finna
hér.
Reglugerðin er einnig liður í aðgerðaráætlun til eflingar íslensks landbúnaðar í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins. Með því að gera bændum kleift að framleiða og selja afurðir beint frá býli má styrkja verðmætasköpun og afkomu þeirra fyrir næstu sláturtíð. Með þessu er einnig stuðlað að frekari fullvinnslu, vöruþróun, varðveislu verkþekkingar og menningararfs við vinnslu matvæla.
-
Markaðurinn7 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn6 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Frétt5 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun20 klukkustundir síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðanBreskir sigurvegarar í fish and chips-keppni heillaðir af íslenskum sjávarútvegi



