Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Héðinn Kitchen & Bar er nýr veitingastaður í Reykjavík

Birting:

þann

Héðinn Kitchen & Bar

F.v. Elías Guðmundsson eigandi, Arnar Ingi Kristenssen matreiðslumaður, Sigurjón Braga Geirsson yfirkokkur, Sindri Guðbrandur Sigurðsson matreiðslumaður og Karl Viggó Vigfússon eigandi og framkvæmdastjóri.

Héðinn Kitchen & Bar er nýr veitingastaður & bar í 101 Reykjavík, í endurhönnuðu húsnæði sem áður var stálsmiðjan Héðinn.  Staðurinn mun opna 17. júní næstkomandi.

Húsnæðið var nýlega endurhannað og þessu stóra og sögufræga húsnæði breytt í hótel, veitingastað og kaffihús og bar. Hönnunarfyrirtækið I AM LONDON sá um að breyta þessari fyrrum stálsmiðju í glæsilegt rými hafið sem mun bæta lífi og lit á Granda.

Í framlínu veitingastaðarins Héðinn eru stofnendurnir Karl Viggó Vigfússon og Elías Guðmundsson sem eru báðir vanir veitingamenn og einnig æskuvinir.

Héðinn Kitchen & Bar

Þvílíkt teymi
Sindri Guðbrandur Sigurðsson matreiðslumaður, Sigurjón Braga Geirsson yfirkokkur og Arnar Ingi Kristenssen matreiðslumaður

Þeir fengu til liðs við sig kokkinn Sigurjón Braga Geirsson, landsliðskokk og fyrrum landsliðsþjálfara Kokkalandsliðsins til að skapa spennandi en samt sem áður afslappaðan less is more matseðil, sem mun vera árstíðarbundinn og áhugaverður.  Sindri Guðbrandur Sigurðsson landsliðkokkur og Arnar Ingi Kristenssen matreiðslumaður munu standa þétt við bakið á Sigurjóni.

Stefán Ingi Guðmundsson framreiðslumeistari mun stýra staðnum af einskærri snilld. En hann er Íslandsmeistari í barþjóni 2015 og hefur 36 ára reynslu í bransanum.

Viggó og Elli eru sem áður sagði veitingageiranum vel kunnugir hérlendis, en Elli er stofnandi Gló veitingastaða og starfaði þar sem framkvæmdastjóri um árabil. Viggó, sem er lærður og virtur bakari og konditor, er stofnandi og framkvæmdastjóri Blackbox, en var einnig einn af stofnendum OmmNomm og Skúbb.

Héðinn Kitchen & Bar

Hönnunarfyrirtækið I AM LONDON sá um að breyta þessari fyrrum stálsmiðju í glæsilegt rými hafið sem mun bæta lífi og lit á Granda

Sigurjón Bragi Geirsson yfirkokkur Héðinn restaurant var í Kokkalandsliðinu og landsliðsþjálfari á árunum 2016-2020. Hann nam á Silfur, starfaði seinna á Hótel Borg, Kolabrautinni, Garra og Essensia. Sindri Guðbrandur Sigurðsson landsliðkokkur mun standa vaktina með Sigurjóni en hann hefur starfað á Ion hótel Nesjavellir um árabil.

Elenora Rós Georgesdóttir bakari og metsöluhöfundur mun svo töfra fram einstakt bakkelsi og kökur á nýja kaffihúsinu og skapa góða stemningu eins og henni einni er lagið.

Fylgist með á Instagram: Héðinn Kitchen & Bar

Myndir: Hallur Karlsson

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið