Viðtöl, örfréttir & frumraun
Elenora Rós með nýtt samstarf á spennandi tímum
Elenora Rós, betur þekkt undir nafninu Bakaranora, hefur gengið til liðs við umboðsskrifstofuna Furu media. Með hlýju, húmor og ástríðu fyrir bakstri hefur hún skapað sér sterka stöðu á samfélagsmiðlum og orðið margra uppáhalds þegar kemur að innblæstri í eldhúsinu.
Elenora hefur á undanförnum árum byggt upp traustan hóp fylgjenda sem sækir til hennar bæði hvatningu og hugmyndir að einföldum og bragðgóðum bakstri. Hún er þekkt fyrir að miðla gleði og lífsgleði í gegnum efnið sitt, þar sem raunveruleikinn og hláturinn fá jafnt að njóta sín.
-
Kristjana Björk Barðdal, framkvæmdastjóri Furu.
Mynd: Veronika Guls
-
Kalli, rekstrarstjóri Furu.
Mynd: Veronika Guls
„Bakaranora hefur einstakan sjarma og hlýju sem endurspeglar kjarnann í því sem við viljum standa fyrir,“
segir Kristjana Björk Barðdal, stofnandi og framkvæmdastjóri Furu.
„Það verður að vera gaman, annars er svo leiðinlegt,“
bætir hún við og segir samstarfið við Elenoru og aðra nýja áhrifavalda vera spennandi viðbót við fjölbreyttan hóp fyrirtækisins.
- Rósmarý Kristín og Thelma Hrund
-
Björn Grétar.
Mynd: Daníel Starrason
Auk Bakaranoru hafa Björn Grétar, sem stendur á bak við Pabbalífið og The Bear Dad, Kalli rekstrarstjóri Furu, og hlaðvarpið Tvær úr tungunum með þeim Rósmarý Kristínu og Thelmu Hrund, gengið til liðs við Furu, að því er fram kemur í tilkynningu.
Fura media hefur á síðustu árum eflst sem vettvangur fyrir skapandi samstarf áhrifavalda og fyrirtækja, þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, langtímasambönd og einlæga nálgun.
Haustið og veturinn eru einn stærsti tími ársins fyrir markaðsherferðir, og Fura undirbýr nú fjölbreytt verkefni í samstarfi við áhrifavalda, vörumerki og fyrirtæki fyrir hátíðarnar.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn1 dagur síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir








