Starfsmannavelta
Hagabakarí kveður eftir áratugi í Hraunbergi

Hagabakarí í Hraunbergi hefur um áratuga skeið verið fastur punktur í hverfinu, en eigendur bakarísins hafa nú ákveðið að hætta rekstri.
Hagabakarí í Hraunbergi í Breiðholtinu lokar brátt dyrum eftir áratuga rekstur í hverfinu. Þetta kemur fram í umfjöllun mbl.is og Morgunblaðsins í dag.
„Einu sinni voru sjö bakarí í Breiðholti. Þróunin er að þetta fer allt í stórmarkaðina,“
segir Benedikt Hjartarson, annar eigenda bakarísins, í samtali við Morgunblaðið.
Hagabakarí hefur um árabil verið fastur punktur í daglegu lífi margra íbúa í Breiðholti og segja eigendurnir eftirsjá verða af daglegum samskiptum við viðskiptavini sína.
„Við þekkjum allt þetta fólk. Þetta eru ekki bara viðskiptavinir heldur vinir okkar,“
segir Benedikt.
Benedikt rekur bakaríið ásamt Gunnari Gunnarssyni og með lokuninni hverfur síðasta bakaríið úr hverfinu.
Lesa má nánar um málið á bls. 10 í Morgunblaðinu í dag.
Mynd: Facebook / Hagabakarí
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Markaðurinn4 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Markaðurinn5 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Frétt5 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur


