Frétt
Glúten í glútenfríu maískökum
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar á innköllun á glútenfríum el TACO TRUCK Corn-Tortillum sem fyrirtæki Steindal ehf. flytjur inn. Ástæðan fyrir innköllun er að það greindust leifar af glúteni í tortillum. Innköllun nær einungis til Corn-Tortillas, tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir glúteni.
Varan hefur verið tekin úr sölu og innkölluð frá neytendum. Innköllunin á einungis við um eftirfarnar framleiðslulotur:
- Vörumerki: El Taco Truck
- Vöruheiti: Corn Tortillas 195gr
- Lýsing á vöru: Mexíkó vefjur
- Framleiðandi: El Taco Truck
- Innflytjandi: Steindal ehf
- Framleiðsluland: Mexíkó
- Rekjanleika upplýsingar: allar lotur
- Strikanúmer: 7350115945011
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Dreifingalisti: Allar verslanir Krónunnar og Melabúðin
Hægt er að skila vörunni til innflytjanda og fá endurgreitt. Varan er skaðlaus þeim sem eru ekki með óþol eða ofnæmi fyrir glúteni.
Mynd: Steindal.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun16 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn15 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni17 klukkustundir síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn2 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




