Starfsmannavelta
Gjaldþrota eftir þrjá mánuði
Veitingastaðurinn Skuggi Italian Bistro hefur verið úrskurðaður gjaldþrota eftir einungis þriggja mánaða rekstur. Staðurinn var opnaður um miðjan mars en honum var lokað á dögunum, að því er fram kemur á mbl.is.
Veitingastaðurinn var í húsnæði Skugga hótels við Hverfisgötu sem var opnað í september síðastliðnum og er í eigu KEA hótela.

Svona leit matseðillinn út.
Á meðal rétta á matseðlinum var hægt að finna súrdegspizzur, 100 laga lasagna, kjötbollu hamborgara, Tígrisrækju linguini í hvítvíni svo fátt eitt sé nefnt
Í Lögbirtingarblaðinu er greint frá því að félagið Skuggi Italian Bistro ehf. hafi verið úrskurðað gjaldþrota 28. júní síðastliðinn í Héraðsdómi Reykjavíkur. Veitingastaðurinn var í sjötíu prósenta eigu félagsins Einibers ehf. og þrjátíu prósenta eigu Söru Kamban Reginsdóttur. Einiber ehf. er í eigu Lilju Ragnhildar Einarsdóttur og Davíðs Mássonar. Félagið var stofnað 1. janúar sl. en líkt og áður segir var staðurinn opnaður í mars.
Á mbl.is kemur fram að einkaþjálfarinn og höfundur LKL-bókanna „Lágkolvetnalífsstíllinn 1 og 2“ og „Kolvetnasnauðir hversdagsréttir“, Gunnar Már Sigfússon, sá um eldhúsið á veitingastaðnum. Á matseðlinum var ítalskur matur með bistroívafi.
Sjá einnig: Nýr veitingastaður í Reykjavík | Býður upp á 100 laga lasagna
Á vef Morgunblaðisins segir að samkvæmt upplýsingum frá hótelinu stendur að minnsta kosti ekki til að opna nýjan veitingastað í rýminu í nánustu framtíð.
-
Keppni7 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni1 dagur síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn16 klukkustundir síðanLíður að jólum
-
Pistlar12 klukkustundir síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð





