Viðtöl, örfréttir & frumraun
Gamli Baukur heldur áfram með nýja eigendur og skýra sýn
Nýr kafli er hafinn í sögu Gamla Bauks á Húsavík, en framreiðslumeistarinn Kristján Örn Sævarsson, Þórunn Harðardóttir, Heimir Harðarson og Hildur Harðardóttir hafa ásamt mökum keypt allan húsakost Bauksins af Norðursiglingu. Með kaupunum er stefnt að því að tryggja rekstraröryggi og framtíð veitingastaðarins til lengri tíma.
Í umfjöllun Husavik.com kemur fram að Kristján Örn og eiginkona hans, Kristveig Halla, standi að félaginu Norðanmatur, sem hefur rekið Gamla Bauk undanfarin ár. Með kaupunum breytist staða þeirra úr leigutökum í hluthafa í húsnæðinu, í samstarfi við börn Harðar Sigurbjarnarsonar, sem var einn af upprunalegum hugmyndasmiðum staðarins.
Kristján segir ákvörðunina fyrst og fremst hafa snúið að því að festa reksturinn í sessi eftir að Norðursigling setti Gamla Bauk á sölu. Við leit að samstarfsfólki hafi verið horft til aðila með sterkar taugar til staðarins, enda sé sameiginlegur vilji til að byggja áfram á sögu og sérstöðu Bauksins.
Gamli Baukur á sér langa og merka sögu í bæjarlífi Húsavíkur og á rætur að rekja til sýslumannshúss sem reist var árið 1843. Undir lok 20. aldar tengdist endurreisn staðarins uppbyggingu Norðursiglingar og áhuga á sjóminjum og eikarbátum.
Veitingageirinn.is heimsótti Gamla Bauk síðastliðið sumar og birti veitingarýni þar sem fjallað var um mat, þjónustu og stemningu á staðnum.
Í lok viðtalsins á Husavik.com berst talið að Þorrablótinu, einum stærsta viðburði ársins í rekstri Bauksins, en Kristján segir undirbúning ganga vel og að reynslan sé orðin mikil eftir fjögur Þorrablót í umsjón hans.
Lesa má nánar um kaupin og framtíðarsýn nýrra eigenda á Husavik.com.
Mynd: Smári / Veitingageirinn.is
-
Markaðurinn5 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Markaðurinn6 dagar síðanOktóbertilboð hjá Danól – kjötbollur og fjölbreytt meðlæti
-
Frétt2 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur




