Nemendur & nemakeppni
Forseti Íslands tók á móti Euroskills keppendum á Bessastöðum – Bríet Berndsen: „Kjötiðn er meira en kjöt og hnífur“ – Myndir
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson tók á móti keppendum í Euroskills, Evrópumóti iðn-, verk- og tæknigreina nú í vikunni. Eins og fram hefur komið hér á veitingageirinn.is þá fór Evrópumótið fram í Gdansk í Póllandi dagana 5. – 9. september. Viðburðurinn fór fram á Bessastöðum.
Mótið er hið stærsta sinnar tegundar í Evrópu og fer fram annað hvert ár með hundruðum keppenda frá 32 þjóðum. Íslendingar tóku fyrst þátt árið 2008 og voru keppendurnir aðeins tveir fyrstu árin en í þetta sinn tóku 11 íslenskir keppendur þátt í ýmsum iðngreinum. Öll tryggðu þau sér keppnisrétt með þátttöku í Íslandsmóti iðn-og verkgreina, sem forseti sótti í mars á þessu ári.
Forseti bauð keppendurna, þjálfara þeirra og bakhjarla velkomin heim og afhenti viðurkenningar fyrir góðan árangur á mótinu. Í ávarpi sínu minnti forseti á mikilvægi iðn-, verk- og tæknigreina fyrir íslenskt samfélag og gildi þess að fólk á öllum aldri veldi sér nám og starf eftir eigin áhugasviði.
Ávarp forseta
Mikið var gaman að taka í dag á móti fulltrúum Íslands á Evrópumótinu í iðn- og verkgreinum sem haldið var í Gdansk í Póllandi fyrir skemmstu. Keppendur okkar stóðu sig með sóma og nutu atbeina einvalaliðs héðan, þjálfara, liðsstjóra og annarra. Um leið er svo gaman að sjá hvernig vegur iðn- og verkgreina hefur eflst á Íslandi.
Við þurfum að geta boðið upp á fjölbreytt nám sem hæfir óskum og vonum hvers og eins. Þannig fær fólk að sýna hvað í því býr, sjálfu sér og öðrum til heilla. Aftur til hamingju, frábæru fulltrúar Íslands!
Frétt á RÚV
Í tíu fréttum á RÚV í gærkvöldi var fjallað um heimsóknina á Bessastaði og var meðal annars rætt við Bríet Berndsen kjötiðnaðarnema. Bríet sagði skemmtilega frá um fagið í viðtalinu og sagði meðal annrs að kjötiðn er meira en kjöt og hnífur, en hægt er að horfa á innslagið með því að smella hér.
Myndir: forseti.is / Jón Svavarsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni4 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn4 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Frétt4 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt6 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn3 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja











