Vertu memm

Frétt

Fjölbreytt og spennandi dagskrá í Mathöllinni í desember

Birting:

þann

Hlemmur Mathöll

Það er bæði fjölbreytt og spennandi dagskrá í boði í Mathöllinni í desember og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Hvetjum við alla til að njóta þess fjölbreytta úrvals viðburða sem í boði er:

Jólamarkaður Hlemms

HVAR: Hlemmur Mathöll, Laugarvegur 107, 101 ReykjavÍK
HVENÆR: Alla laugardaga og sunnudaga á milli 12:00 og 17:00 til 23. des
Hvað:  Jólamarkaður Hlemms er hafinn!
Hlemmur mun koma borgarbúum í jólaskapið (og sjá til þess að þeir passi ekki í jólafötin).
Því hverja helgi fram að jólum mun síbreytilegur hópur matarspekúlanta seðja og gleðja gesti á útimarkaðnum. Markaðurinn er staðsettur við norðurhlið hússins og mun bjóða upp á fjölbreytt úrval af ýmis konar jólalegu góðgæti.  Búast má við óvæntum glaðningum, lifandi tónlist og almennri gleði.

Fylgist vel með á facebook viðburðinum hér.

Hlemmur Geithöll

HVAR: Hlemmur Mathöll, Laugarvegur 107, 101 Reykjavík
HVENÆR: 6. Desember, 16:00-18:00
HVAÐ:  Hlemmur Mathöll verður Hlemmur Geithöll, miðvikudaginn 6. desember á milli klukkan 16 og 18.

Útskriftarnemar í meistaranámi í hönnun við Listaháskóla Íslands standa þar fyrir viðburði tileinkuðum íslensku geitinni sem er afrakstur verkefnis sem unnið var í samstarfi við fjölmarga aðila. Íslenska geitin hefur verið kölluð kýr fátæka mannsins vegna þess hve létt hún er á fóðrum og plássnett.

Geitamjólk þykir afar holl, kjötið er fitusnautt og próteinríkt en hafa má ýmsar nytjar af íslensku geitinni. Íslenski geitastofninn hefur verið í útrýmingarhættu og eru dýrin einungis um 1200 en stofninn er einstakur sem á engan sinn líka.

Verðmæti hans er bæði menningarlegt og erfðafræðilegt en ullarlag geitarinnar er sérstakt. Íslenska geitin hefur fylgt þjóðinni frá landnámi, hún var við líði meðan landsmenn bjuggu í torfkofum og fram til dagsins í dag.

Þennan dag verður hægt að heilsa upp á tvær geitur við Hlemm, inni við verður hægt að skoða afrakstur verkefnisins, sem er meðal annars bók sem í verða upplýsingar og sögur um íslensku geitina.   Margnota taupokar verða til sölu, hægt verður að smakka þurrkaðar geitakryddpylsur og þurrkað geitakjöt. Á matseðli veitingastaðanna Kröst, Skál og La Poblana verða réttir úr geitakjöti og ætla má að allir finni eitthvað við sitt hæfi.

Gleymið IKEA jólageitinni. Þetta er eina alvöru jólageitin.

Facebook viðburður hér.

Piparkökuhúsakeppni Mathallarinnar – Bókabakstur

HVAR: Hlemmur Mathöll, Laugarvegur 107, 101 ReykjavÍk
HVENÆR: 16. Desember, 14:00-15:00

Leynist piparkökulistamaður í þér?
Fyrsta Íslandsmeistaramót Mathallarinnar í piparkökuhúsagerð verður haldið 16. desember næstkomandi. Þetta er einstakt tækifæri til að láta þinn innri kökugerðarsnilling skína.

Þemað að þessu sinni eru piparkökuhús innblásin af bókum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Piparkökugerðarfólk mun leggja smíðina fyrir dómnefnd sem samanstendur af einvala liði íslenskra sérfræðinga í bakstri og matargerð.

REGLUR: Öll húsin þurfa að vera heimagerð og að öllu eða mestu leyti tilbúin áður en komið er á staðinn.

Skráning hér.

1. Verðlaun — Gjafakort frá Wow Air og titilinn Piparkökukeisari Hlemms
2. Verðlaun — Gjafakort frá Hlemmi og titillinn Lilli klifurmús
3. Verðlaun — Vegleg gjafakarfa frá vinum og velunnurum Hlemms og titillinn Vandræðabakari

Facebook viðburður hér.

Bóka og matarskiptimarkaður Mathallarinnar

HVAR: Hlemmur Mathöll, Laugarvegur 107, 101 Reykjavík
HVENÆR: 20.desember, 19:00 – 21:00

Hlemmur Mathöll býður þér að taka þátt í bóka- og matarskiptimarkaði Mathallarinnar. Þar gefst gestum færi á að deila og skiptast á gjöfum í sönnum jólaanda.
Engir peningar, ekkert rugl.
Komdu færandi hendi með bækur sem þú ert búin(n) að lesa eða með mat sem þú hefur lagað og deildu með hinum jólabörnunum
Smákökur, skáldsögur, súrmeti, smásögur, kjötsúpur, ljóð hripuð niður á munnþurrkur…allt er leyfilegt!
Skiptu á bók fyrir bók eða bók fyrir köku. Alveg eins og þig lystir.

Facebook viðburður hér.

Fylgist vel með á facebook síðu Mathallarinnar hér.

Mynd: Arthur Lawrence

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið