Vertu memm

Markaðurinn

Fallegur ostabakki sem passar fullkomlega á páskum

Birting:

þann

Fallegur ostabakki sem passar fullkomlega á páskum

Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að föndra saman fallega ostabakka. Það er um að gera að leyfa hugmyndafluginu að ráða för en hafa nokkur atriði í huga.

Gott er að byrja á að raða skálum, gjarnan á fæti, stærri hlutum og ostunum á bakkann. Skera flesta ostana í handhæga bita og enda svo á að fylla upp með litríkum berjum, sælgæti, salami, kexi og því sem manni dettur í hug.

Á þessum bakka er:

1 Dala hringur

1 Dala camembert

1 Goðdala Feykir

1 Goðdala Grettir

1 Stóri Dímon

1 Kryddostur með hvítlauk

Að eigin vali:

Hindber

Jarðarber

Brómber

Gúrkusneiðar

Þunnt sneitt salami

Súkkulaðiegg

Fjölbreytt kex

Aðferð:

Skerið bitana í fjölbreytta og handhæga bita. Raðið á bakkann ásamt skálum sem þið fyllið með góðgæti. Fyllið upp með berjum, sælgæti, gúrku, salami og kexi.

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttum og bragðgóðum uppskriftum til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið