Keppni
Fagkeppni Meistarafélags Kjötiðnaðarmanna haldin í mars
Meistarafélag kjötiðnaðarmanna heldur nú í fimmtánda sinn fagkeppni Meistarafélags Kjötiðnaðarmanna. Keppnin (dómgæsla) fer fram 22. og 23. mars 2022 í Hótel og matvælaskólanum í Kópavogi. Verðlaunafhending verður síðan 26. mars á sama stað.
Sjá einnig:
Fagkeppni Meistarafélags Kjötiðnaðarmanna haldin í fimmtánda sinn
Keppni fer fram í fimm flokkum:
- Eldaðar vörur
Allar vörur sem eru soðnar svo sem slátur, álegg, hangikjöt ofl.
- Sælkeravörur
Allar hráverkaðar vörur eins og spægipylsur, þurrkaðir vöðvar ofl.
- Soðnar pylsur
Allar soðnar pylsur.
- Kæfa / Paté
Allar soðnar/bakaðar, kæfur/paté
- Nýjungar
Allar vörur sem þér teljið vera nýjar á markaði, hvort sem eru soðnar, bakaðar eða hráar.
Aukakeppni
Eins og í síðustu keppnum þá fer fram aukakeppni þar sem lax og silungur er aðal varan. Keppt verður um besta reykta / grafna laxinn og um besta reykta / grafna silunginn.
Hver kjötiðnaðarmaður getur sent inn allt að 10 vörur með þeim fyrirvara þó að varan sé ekki eins að gerð, útliti eða nafni. Til að geta unnið titilinn „Kjötmeistari Íslands 2022” þarf meginuppistaðan í að minnsta kosti 3 vörum að vera úr mismunandi kjötflokkum.
Búgreinafélögin veita verðlaun fyrir bestu vöruna unna úr lambakjöti, úr svínakjöti, úr nautakjöti, úr hrossakjöti og úr alifuglakjöti og þarf því að tilgreina hver sé megin kjöttegund í vörunni.
Veitt verða verðlaun fyrir bestu vöruna úr flokknum; eldaðar vörur, sælkeravörur, soðnar pylsur, kæfur og paté og nýjungar.
Þær 5 vörur sem flest stig hljóta frá hverjum keppanda telja í lokin til titils kjötmeistara íslands, en þann titil hlýtur eins og áður sá sem flest stig hlýtur í heildina.
Allar vörur sem tilheyra kjötiðnaðinum eru gjaldgengar, eins og verið hefur í fyrri keppnum, hvort sem þær eru unnar úr kjöti, fisk, fuglum, innyflum eða allt það sem að menn telja að tilheyri faginu.
Þær vörur sem allajafnan eru seldar ósoðnar eins og t.d. hangikjöt skulu samt sem áður vera soðnar áður en þær eru sendar í keppnina, það er til hagræðis og tímasparnaðar í dómarastörfum.
Eins og í síðustu keppni er ætlunin að sjálf keppnin, þ.e. störf dómara, verði á sýningarsvæðinu sjálfu, en það hefur jafnan vakið mikla eftirtekt og dregið athyglina enn frekar að keppninni en áður hefur verið. Dómarar munu vera að störfum miðvikudag og fimmtudag allt eftir fjölda innsendra vara. Verðlaunavörur verða sýndar á svæði Meistarafélags kjötiðnaðarmanna í skólanum eftir að dómarar hafa lokið störfum sínum, og verða þær merktar keppanda og fyrirtæki.
Verðlaunaafhending mun fara fram á MFK deginum sem verður haldinn laugardaginn 26.mars 2022.
Mynd: úr safni

-
Keppni3 dagar síðan
Íslenska landsliðið í kjötiðnaði sýndi frábæran árangur á Heimsmeistaramótinu í París – Myndir og vídeó
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 klukkustundir síðan
Pizzabakarinn opnar á Siglufirði – Theodór Dreki: „Við hættum ekki fyrr en pizzan var fullkomin“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Snædís, Hafliði og Marlís kynntu íslenska matargerð á ríkisheimsókn forsetahjóna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Pop-up kvöld: Gísli Matt mætir á Le KocK – aðeins þetta eina kvöld
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Kælivagn til leigu
-
Íslandsmót barþjóna2 dagar síðan
Róbert Aron Garðarsson Proppé er Íslandsmeistari Barþjóna 2025 – Myndir og vídeó
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Kynning í Garra næsta miðvikudag
-
Keppni2 dagar síðan
Brauðtertukeppni fyrir fagmenn