Markaðurinn
Eyjó og Dóri mættu með afmælisköku – Hafið fagnar tímamótum

Stofnendur Hafsins Fiskverslunar fögnuðu 20 ára afmæli fyrirtækisins með viðskiptavinum og buðu upp á afmælisköku í tilefni dagsins.
Hafið Fiskverslun Hlíðasmára fagnaði nýverið 20 ára afmæli sínu, en verslunin var stofnuð 2. janúar árið 2006. Í tilefni tímamótanna hefur Hafið haldið upp á afmælið allan janúarmánuðinn með veglegum tilboðum fyrir viðskiptavini.
Boðið hefur verið upp á 20 prósenta afslátt af völdnum réttum og vörum auk þess sem réttur dagsins hefur verið seldur á 20 ára gömlu verði, sem hefur vakið mikla ánægju meðal fastra gesta jafnt sem nýrra viðskiptavina.
Síðasta mánudag mættu stofnendur og eigendur fyrirtækisins, þeir Eyjólfur Pálsson, jafnan kallaður Eyjó, og Halldór Halldórsson, eða Dóri, í verslunina og fögnuðu tímamótunum með viðskiptavinum. Þeir buðu upp á afmælisköku og nýttu tækifærið til að þakka fyrir tryggðina og stuðninginn sem Hafið hefur notið í gegnum árin.
Hafið Fiskverslun Hlíðasmára hefur á þessum tveimur áratugum fest sig í sessi sem traustur kostur fyrir þá sem leggja áherslu á gæði, ferskleika og persónulega þjónustu, og afmælishátíðin var skýr áminning um sterka stöðu verslunarinnar í nærumhverfinu.
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




