Vertu memm

Bocuse d´Or

„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís

Birting:

þann

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Bocuse d’Or kandídat Íslands

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Bocuse d’Or kandídat Íslands.
Mynd: facebook / Bocuse d´or Iceland Team Snædís Xyza

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir verður næsti keppandi Íslands í undankeppni Bocuse d’Or sem fram fer í Marseille dagana 15. og 16. mars 2026. Snædís keppir seinni daginn, mánudaginn 16. mars, þegar fremstu kokkar Evrópu takast á í einni virtustu matreiðslukeppni heims.

Sjá einnig: Keppnisröð Bocuse d’Or 2026 liggur fyrir

Stífur undirbúningur

Undirbúningurinn hefur verið bæði langur og krefjandi. Æfingar hafa staðið yfir mánuðum saman og síðustu vikurnar fyrir keppni hafa verið sérstaklega þéttar.

„Undirbúningurinn hefur gengið vel. Þetta hefur verið mjög krefjandi og ýmislegt komið upp á á æfingum, en við fengum gott push í endann,“

segir Snædís.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Bocuse d’Or kandídat Íslands

Með Snædísi Xyza Mae Jónsdóttur starfar öflugt teymi sem hefur staðið að baki undirbúningi Íslands fyrir Bocuse d’Or Europe í Marseille.

Hver mínúta skiptir máli

Tímaæfingar eru stór hluti af undirbúningnum fyrir Bocuse d’Or og þar skiptir hver mínúta máli. Snædís segir að það hafi tekið tíma að ná fullri stjórn á tímanum, en að lokum hafi það tekist.

„Við vorum í basli með tímann fyrst. Það var alltaf erfitt að klára æfingu þegar við náðum ekki á tíma. En í síðustu þremur tímaæfingunum náðum við loksins tímanum og áttum meira að segja inni tíu mínútur. Það er eiginlega kraftaverk.“

Frá áramótum hefur liðið tekið um þrettán til fjórtán tímaæfingar og síðustu fimm vikurnar fyrir keppni hafa verið sérstaklega strangar. Dagarnir hafa oft verið tíu til tólf klukkustundir og frídagar fáir.

Snædís keppir í Bocuse d´Or í stað Hinriks

Íslenska Bocuse d´Or teymið.
Sigurður Helgason þjálfari, Marlís Jóna Karlsdóttir aðstoðarmaður, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir Bocuse d’Or kandídat Íslands og Viktor Örn Andrésson er í dómnefnd keppninnar sem fulltrúi Íslands.

Langir æfingadagar kalla líka á góðan „comfort mat“. Aðspurð hvað hafi haldið liðinu gangandi í gegnum æfingatörnina nefnir Snædís einfalt en mikilvægt eldsneyti.

„Rikki Chan hefur bjargað okkur. Og líka Sælkeramatur,“

segir hún og hlær.

Baráttan við að nálgast hráefnið

Undirbúningurinn hefur líka falið í sér áskoranir þegar kemur að hráefni. Í keppninni þarf meðal annars að vinna með cuttlefish og fisktegundina red gurnard, hráefni sem ekki eru einföld í að nálgast hér á landi.

„Það hefur verið dálítið strembið. Ég hef verið að vinna með cuttlefish frosinn hér heima, en fór til Frakklands í lok janúar eða byrjun febrúar til að panta hann og fékk aðstöðu hjá íslenska sendiráðinu til að verka hann. Það var mikilvægt að fá að snerta hráefnið,“

segir Snædís.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Bocuse d’Or kandídat Íslands

Innflutningsfyrirtækið Innnes hefur á sama tíma aðstoðað liðið við að útvega red gurnard til æfinga.

Sjá einnig: Skylduhráefni Bocuse d’Or

Óvænt verkefni breytti öllu

Óvæntar áskoranir hafa einnig komið upp í æfingunum. Skömmu fyrir keppni bættist nýtt verkefni við sem hafði áhrif á skipulagið í eldhúsinu.

„Það kom upp svokallað test 23. febrúar sem við þurftum að leysa. Þá þarf ég að fara upp á svið og gera sósuna fyrir theme on plate og það tekur um tuttugu mínútur sem er hellings tími í svona keppni,“

segir Snædís. Hún útskýrir að breytingin hafi haft áhrif á alla tímaröðina í eldhúsinu og krafist þess að liðið endurskipulagði æfingarnar til að ná samt að klára allt innan tímamarka.

Þegar styttist í keppni segir Snædís spennuna fara að magnast, þó hún reyni að halda ró sinni.

„Maður er alltaf eitthvað stressaður, en ég er fyrst og fremst spennt. Það verður ótrúlegt að fara á stóra sviðið og sýna hvað maður hefur verið að vinna að síðustu fjóra mánuði.“

„Það þarf að búa til eitthvað system“

Á æfingunum hefur líka myndast ákveðin innanhúss stemning innan liðsins. Ein setning hefur verið endurtekin svo oft að hún er orðin að hálfgerðum brandara innan hópsins, nefnilega að „það þurfi að búa til eitthvað system“, þegar finna þarf lausn á nýrri áskorun í eldhúsinu.

Að hennar sögn skiptir andlegi undirbúningurinn einnig miklu máli í svona keppni.

„Maður þarf eiginlega að rífa upp egóið og hugsa stórt. Annars kemst maður ekki langt í þessari keppni. Ef hausinn er ekki í réttu mode-i þá er maður bara étinn.“

Markmiðin eru skýr þó Snædís stilli væntingum í hóf.

„Draumurinn væri að ná topp fimm. Það væri rosalegur árangur miðað við þann tíma sem við höfðum til að undirbúa okkur.“

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Bocuse d’Or kandídat Íslands

Íslenska Bocuse d’Or liðið við æfingar í keppniseldhúsinu hjá Fastus.

Fyrir Snædísi er þátttakan sjálf þó stærsta skrefið.

„Það skiptir mig öllu máli að fá að vera Bocuse d’Or kandídat Íslands. Ég er að elta drauminn. Að keppa í þessari keppni hefur alltaf verið draumur og að fá þetta tækifæri er algjör blessun.“

Eftir mánuði af stífum æfingum bíður svo verðlaunin þegar keppninni lýkur. Þá hyggst Snædís taka sér smá frí frá eldhúsinu.

„Ég ætla í Brettaferð með kallinum og helst bara sofa. Náttúran kallar líka, fá ferskt loft, tæma hugann og njóta.“

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Bocuse d’Or kandídat Íslands

Íslenska Bocuse d’Or liðið bregður á leik í myndbandi þar sem þau svara skemmtilegum spurningum.

Hér að neðan má sjá myndband sem Bocuse d’Or hefur sett saman þar sem íslenska liðið svarar skemmtilegum spurningum.

Ef Instagram færslan birtist ekki hér fyrir neðan er ráð að endurhlaða síðuna (e. refresh).

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Bocuse d’Or (@bocusedor)

Á fréttavaktinni eins og alltaf

Veitingageirinn.is verður á fréttavaktinni, líkt og vefurinn hefur gert í áratugi.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið