Freisting
Carlsberg lokar um helmingi brugghúsa sinna í Evrópu
Danska bjórframleiðslufyrirtækið Carlsberg, sem er hið fimmta stærsta í heimi, ætlar að loka 14 af 29 brugghúsum sínum í Evrópu, að því er talsmaður fyrirtækisins tilkynnti í dag. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða brugghúsum verður lokað og hvenær það verður gert.
Þá liggur ekki fyrir hversu mörg störf munu tapast. Jens Peter Skårup, talsmaður Carlsberg, sagði nauðsynlegt að gera starfsemi Carlsberg í Evrópu skilvirkari og þetta hefði í för með sér að loka yrði sumum verksmiðjum þess.
Í viðtali við viðskiptablaðið Børsen í dag segir Nils Smedegaard Andersen, framkvæmdastjóri Carlsberg, að líklega verði brugghús Carlsberg í Kaupmannahöfn hætt starfsemi eftir sex ár. Við getum ekki sagt til um hvað verður um önnur brugghús, sagði Skårup. Þau eru í níu öðrum Evrópuríkjum.
Carlsberg var stofnað árið 1847. Í dag starfa um 31.000 manns hjá fyrirtækinu. Carlsberg framleiðir um 74 milljónir bjórflaskna á degi hverjum. Stærstu markaðir fyrirtækisins eru í Evrópu og Asíu.
Greint frá í Morgunblaðinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn1 dagur síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju



