Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Bjóða upp á Krydd og te úr 100% náttúrulegu hráefni og engin aukaefni

Birting:

þann

Krydd og Tehúsið

Krydd og Tehúsið sem opnaði í október við Þverholt 7 í Reykjavík hefur fengið mjög góðar viðtökur.  Kryddin og tein eru úr 100% náttúrulegu hráefni og engin aukaefni finnast í vörunum.

Auk þess að vera krydd og tebúð er boðið upp á súpu, gerða frá grunni úr kryddunum þeirra og heimabakað brauð til að taka með sér í hádeginu.

Á barnum eru gæða te í miklu úrvali og kaffi sem malað er á staðnum og ekki má gleyma nammibarnum sem er stútfullur af hollustu fyrir börn á öllum aldri.  Kærkomin búð sem vert er að kíkja á.

Krydd og Tehúsið

Eigendur eru hjónin Ólöf Einarsdóttir og Omry Avraham.

Á meðal ummæla viðskiptavina:

Dásamleg búð sem gaman er að koma í og vinalegt viðmót sem mætir manni – og svo er hægt að lykta af og smakka allt sem mér finnst mikill kostur! Punkturinn yfir i-ið er að það er algerlega samkeppnishæft verð jafnvel þó gæðin séu langtum meiri en það sem gengur og gerist á Íslandi!

 

Kjötsúpan er æði!
Verslunin með þeim flottari og þjónustan súper hlakka til að koma aftur & aftur…. & aftur

 

Þetta er eins og að komast á „nammibar“ af bestu gerð.
Algjörlega frábært að geta keypt blönduð krydd (án aukaefna) fyrir eina máltíð í senn í staðin fyrir að þurfa að kaupa 5-6 mismunandi krydd.

 

Myndir frá facebook síðu: Krydd og Tehúsið.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið