Bocuse d´Or
Bjarni Siguróli verður næsti Bocuse d´Or kandídat
Bocuse d´Or Akademía Íslands hefur valið næsta Bocuse d´Or kandídat og mun Bjarni Siguróli Jakobsson keppa fyrir Íslands hönd í forkeppni Bocuse d´Or í Turin, Ítalíu vorið 2018. Bocuse d´Or forkeppnin er fyrir aðalkeppnina sem haldin verður í Lyon í janúar 2019.
Bjarni Siguróli er sjálfstætt starfandi matreiðslumeistari og rekur eigið fyrirtæki undir heitinu Reykjavík Gastronomy. Í gegnum tíðina hefur hann m.a. starfað á og stjórnað eldhúsum eins og Geira Smart, Slippbarnum og Vox ásamt veitingahúsum í Danmörku sem skarta í dag 2* og 3* Michelin stjörnum.
Þá vann hann til fjölda gull- og silfurverðlauna sem liðsmaður Íslenska kokkalandsliðsins á árunum 2013-2017 og gegndi stöðu fyrirliða liðsins frá 2015.
Bjarni hefur tekið þátt í fjölmörgum einstaklings matreiðslukeppnum og hlaut m.a. titilinn Kokkur ársins á Íslandi árið 2012 og hreppti silfur í keppninni Matreiðslumaður Norðurlanda 2013.
Á næsta ári mun Bjarni hefja undirbúning fyrir Bocuse d’Or, Europe sem haldin er eins og áður segir í Turin, Ítaliu vorið 2018 og úrslitakeppnina í Lyon, Frakklandi janúar 2019.
Bocuse d’Or er heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu og er af virtustu fagmönnum talin mest krefjandi matreiðslukeppni í heimi.
Það má með sanni segja að Bjarni er verðugur fulltrúi okkar íslendinga í hinni heimsfrægu Bocuse d´Or keppni.
Mynd: Kristinn Frímann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanEfnisstraumar á veitingageirinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanGóðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
-
Keppni6 dagar síðanMarína Björk bakaranemi sigraði í kleinuhringjakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanElvar keppti fyrir Íslands hönd í Singapore
-
Keppni7 dagar síðanParís 1920 í aðalhlutverki í árlegum keppnum Garra
-
Frétt3 dagar síðanÓlöglegt varnarefni fannst í Pinkids eplum
-
Frétt3 dagar síðanSkordýraleifar fundust í hrísgrjónum
-
Markaðurinn6 dagar síðanIðan Fræðslusetur 20 ára – fullt af tækifærum fyrir fagfólk




