Markaðurinn
Alþjóðleg Cocktail keppni | Glæsilegir vinningar í boði
Hannaðu þína eigin útgáfu af klassíska drykknum The Singapore Sling og taktu þátt í
The Sling Award 2014. Glæsilegir vinningar í boði.
Allt frá árinu 1818 hefur líkjörinn Cherry Heering verið notaður sem einskonar tísku skraut í eitt af vinsælli drykkjum síðari ára. Líkjörinn er búinn til úr 100% náttúrulegum kirsuberjum og er engum aukaefnum bætt út í blönduna.
Fyrir áratugum síðan var klassíski drykkurinn, The Singapore Sling búinn til af kínverska barþjóninum Ngiam Tong Boon á Raffels hótelinu í Singapore. Í dag má enn finna gamlar uppskriftir frá Ngiam í sýningarskáp hótelsins og þar á meðal THE SINGAPORE SLING uppskriftina rifsaða niður á blaðsnifsi síðan 1936. Er þetta fyrsti drykkurinn sem öðlaðist heimsfrægð og inniheldur blandan, 30 ml gin, 15 ml Heering Cheery, 120 ml ananassafa, 15 ml lime safa, 7,5 ml Cointreau, 7,5 ml Dom Benedictine og dass af Angostura bitter.
Peter F. Heering Sling Award 2014
- Hannaðu þína eigin útgáfu af klassíska drykknum, The Singapore Sling. Drykkurinn verður að innihalda Cherry Heering – heimatilbúið sýróp eða annað í þeim dúr er ekki leyfilegt.
- Taktu mynd af drykknum og gefðu honum nafn. Sendu myndina og nafnið á drykknum, ásamt persónulegum upplýsingum í gegnum facebook síðuna eða heimasíðuna.
- Alþjóðleg dómnefnd mun velja einn vinningshafa frá hverju landi sem tekur þátt. Útfrá þeim eru valdir 15 drykkir til undanúrslita.
- Þeir 15 sem komast áfram í undanúrslit fá senda spjaldtölvu sem inniheldur leiðbeiningar um undanúrslitin sem fer fram í lok ágúst í London. Þeir 15 sem komast áfram þurfa að senda inn 3 mínútna myndband og mun alþjóðleg dómnefnd sérfræðinga velja 5 af þessum 15 til að keppa til úrslita í Berlín í október.
- Þessir 5 sem keppa til úrslita þurfa að blanda og kynna drykkinn sinn persónulega á BCB barnum í Berlín í Þýskalandi, þann 7.-8. október. Dómnefnd sérfræðinga og annarra áhorfenda velja í lokinn einn vinningshafa. Vinningshafi keppninnar fær 500€ ásamt Silfur Stelton blandara frá Danmörku.
- Allir þeir 5 sem keppa til úrslita fá flug og gistingu í tvær nætur í Berlín frítt.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að smella hér.
-
Markaðurinn2 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn2 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt6 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt6 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt5 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Frétt3 dagar síðanÁttu þessa Voga ídýfu? Ekki neyta hennar ef þú ert með hveitiofnæmi



