Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Akur er nýr veitingastaður við Hafnartorg
Akur, veitingastaður og vínbar hefur opnað á Hafnartorgi. Akur er á jarðhæð Austurhafnar, við Bryggjugötu 4A og er hluti af hinu stækkaða Hafnartorgssvæði á milli Lækjartorgs og Hörpu. Úr gluggum Akurs er afar skemmtilegt útsýni yfir gömlu höfnina.
„Formleg opnun á staðnum verður eftir nokkrar vikur þegar að Gallerýið á Hafnartorgi opnar en þar sem staðurinn er nú þegar tilbúinn, ákváðum við að taka smá þjófstart,“
segir Böðvar Lemacks, yfirkokkur og einn eiganda Akurs, um opnunina. Hann segir sérstöðu Akurs einkum vera sterk áhrif frá frönsku eldhúsi og norrænum kröfum um hráefnaval.
Matseðillinn er síbreytilegur til að tryggja að sem ferskast hráefni hverju sinni.
„Val á hráefni er númer eitt, tvö og þrjú á Akri“,
segir hann og bætir við
„Hráefnið og meðferð þess skiptir höfuðmáli; þess vegna horfum við mikið til árstíðanna, hvar og hvenær íslenskt hráefni nýtur sín best og mótum svo matseðilinn eftir því. Hann verður því síbreytilegur og í stöðugri mótun eftir því hvað við höfum að vinna með hverju sinni“.
Sjálfur hefur Böðvar mikla reynslu af veitingarekstri en hann hefur undanfarin ár rekið veitingastaðinn Kröst sem staðsettur er á Hlemm mathöll. Þar áður vann Böðvar m.a. á Argentínu, Apótekinu & Grillmarkaðnum.
Hann á ekki langt að sækja áhugann á matreiðslu því í fjölskyldunni eru margir kokkar og áhugi á mat og matreiðslu afar mikill. Með Böðvari í eldhúsinu er hinn danski John Steen Pedersen, yfirkokkur á Akri. Hann hefur m.a. unnið á Dill, Agern í NY og D.O.M. í Sao Paulo.
Eitt af því einkennir Akur er gríðarlega gott úrval vína en á vínlistanum verða yfir 200 víntegundir.
„Frakkland og vínsvæði í nágrenni Frakklands verða í aðalhlutverki á vínlistanum, sem verður stór á alla mælikvarða. Við munum einkum bjóða upp á vín frá Champagne & Bourgougne í Frakklandi“
, segir Böðvar.
„Þeir sem við kaupum frá eru gjarnan minni vínframleiðendur sem hafa mikla ástríðu fyrir framleiðslu sinni og nota lífræna aðferðafræði við ræktun verða í aðalhlutverki. Þess má að lokum geta að frá hinum einstaka framleiðanda Koehler-Ruprecht Pfalz í Rínarlandi koma margar útgáfur af þurrum Riesling vínum.“
Heimasíða: www.akur-restaurant.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Markaðurinn1 dagur síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanGestir stjórna gröfum á meðan þeir borða og drekka








