Keppni
Landslið íslenskra matreiðslumanna fær kraftmikinn stuðning frá Íslandshótelum

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Þórir Erlingsson, Sævar Karl Kristinsson og Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
Kokkalandsliðið skrifaði nýverið undir bakhjarlasamning við stærstu hótelkeðju landsins Íslandshótel sem á og rekur 17 hótel og veitingastaði um allt land. Sævar Karl Kristinsson, yfirmaður veitingasviðs Íslandshótela og Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, undirrituðu samninginn við athöfn á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar sem er staðsett við Lækjargötu á glæsihótelinu Hótel Reykjavík Saga.
Íslandshótel hafa lengi verið tengd landsliðinu þar sem bæði fyrrverandi og núverandi landsliðsfólk starfar á veitingastöðum keðjunnar. Nýverið var hin margverðlaunaða Snædís Xyza Mae Jónsdóttir ráðin sem yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík en hún er þjálfari Kokkalandsliðsins. Á þeim tíma sem hún hefur stjórnað liðinu hefur það m.a. náð besta árangri Íslands á Ólympíuleikum (2024).
Þessi samstarfssamningur mun styrkja enn frekar samvinnu landsliðisins og Íslandshótela og veita landsliðinu tækifæri til að deila þekkingu sinni og færni innan veitingastaða keðjunnar. Með þessum hætti er stefnt að því að koma með aukna og fjölbreytnari þekkingu í þá matargerð sem boðið er upp á á hótelunum auk þessa að vera landsliðinu innan handar við undirbúning og keppnir á stórum mótum sem og innanlands.

Hjörtur Valgeirsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara og Dóra Takefusa, hótelstjóri á Hótel Reykjavík Sögu
Íslandshótel hafa löngum verið þekkt fyrir að styðja við íslenska matarmenningu og lagt miklá áherslu á gæði og fagmennsku. Með þessu samstarfi er augljóst að stefnan er tekin á að vera í framlínunni í íslenskri matargerð.
Samningurinn miðar að því að styrkja tengsl Kokkalandsliðsins við Íslandshótel og stuðla að auknu samstarfi landliðsins og Íslenskrar ferðaþjónustu með áherslu á gæði veitinga. Næsta stóra mót er heimsmeistaramótið sem fram fer í Lúxemborg 2026 og ætlar liðið sér stóra hluti.
“Við hlökkum til að sjá árangurinn af þessu spennandi samstarfi í framtíðinni,”
segir Þórir Erlingsson forseti Klúbbs Matreiðslumeistara en klúbburinn stefnir á að bæta við Ungkokkalandsliði fyrir heimsmeistaramótið í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg 2026.
“Samstarf við öflug fyrirtæki í greininni sem leggja áherslu á að vera með frábæra fagmenn og góðan hóp af nemum er mjög mikilvægt fyrir okkur og framtíð íslenskrar ferðaþjónustu,“
bætir Þórir við að lokum.
Myndirnar sýna stemninguna þegar Kokkalandsliðið tryggði sér samstarf við stærstu hótelkeðju landsins, Íslandshótel.
Myndir: aðsendar

-
Keppni2 dagar síðan
Þessir fimm keppa til úrslita um titilinn Kokkur ársins 2025 – Grænmetiskokkur ársins fer fram á morgun
-
Keppni3 dagar síðan
Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins – Spennandi helgi framundan
-
Keppni2 dagar síðan
Fréttavaktin: Forkeppni um Kokk ársins 2025
-
Keppni24 klukkustundir síðan
Fréttavaktin: Grænmetiskokkur ársins 2025
-
Keppni2 dagar síðan
Landslið kjötiðnaðarmanna komið til Parísar – Heimsmeistaramótið framundan
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Gefðu hlutunum nýtt líf – skoðaðu úrvalið hjá Efnisveitunni
-
Keppni4 dagar síðan
Reykjavík Cocktail Week: Sjö dagar af kokteilum, stemningu og viðburðum – Hátíðin fer fram 31. mars – 6. apríl
-
Keppni15 klukkustundir síðan
Keppninni Grænmetiskokkur ársins 2025 lokið – Úrslit kynnt í Bjórgarðinum á morgun