Vín, drykkir og keppni
Kampavínsmarkaður í kröppum dansi: Sala hríðféll á árinu 2024
Sala á kampavíni dróst verulega saman árið 2024, með 9,2% samdrætti miðað við árið á undan, samkvæmt Comité Champagne, samtök sem standa vörð um hagsmuni kampavínsframleiðenda í Frakklandi.
Heildarsalan árið 2024 nam 271,4 milljónum flöskum, sem er minnsta sala síðan 2002, að því er fram kemur í tilkynningu frá Comité Champagne.
Á innlendum markaði í Frakklandi minnkaði salan um 7,2% niður í 118,2 milljónir flöskur, sem er lægsta sala síðan 1985. Útflutningur dróst saman um 10,8% og nam 153,2 milljónum flaska.
Maxime Toubart, meðstjórnandi Comité Champagne, benti á að þetta væri ekki tími til að fagna, með verðbólgu, alþjóðlegum átökum og efnahagslegri og pólitískri óvissu í sumum stærstu mörkuðum kampavíns, svo sem Frakklandi og Bandaríkjunum.
Auk þess hafa neytendur í lykilstöðum eins og Bandaríkjunum og Frakklandi minnkað neyslu á þessari lúxusvöru. Ódýrari valkostir eins og prosecco og ensk freyðivín hafa verið að taka yfir hlutverk kampavíns hjá neytendum. Einnig bendir allt til þess að Z kynslóðin (kynslóðin sem sögð er vera sú sem mun breyta öllu) séu að hætta áfengisneyslu í þágu annarra munaðarvara eins og óáfengra kokteila og kannabis.
Þessi þróun hefur haft áhrif á stærstu framleiðendur. Til dæmis tilkynnti Louis Vuitton Moët Hennessy (LVMH), um 12% samdrátt í tekjum af kampavíni og vínum á fyrri helmingi ársins 2024, sem þeir rekja til neikvæðra efnahagslegra og stjórnmálalegra aðstæðna á heimsvísu.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanSilli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð
-
Markaðurinn6 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn6 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Frétt5 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðanBreskir sigurvegarar í fish and chips-keppni heillaðir af íslenskum sjávarútvegi



