Markaðurinn
Lambakjötsúpa – yljar á köldu vetrarkvöldi
Rjómalöguð lambakjötsúpa
með kastaníusveppum og brauðteningum
Hráefni
5 dl lambasoð frá Bone & Marrow
1 box kastaníusveppir
1 gulrót
1 msk matarolía
1 msk smjör
1 msk sherry edik
2 dl rjómi 200 gr beinlaust lambakjöt, skorið smátt
200 gr beinlaust lambakjöt, skorið smátt
Brauðteningar
Feykir
Leiðbeiningar
Uppskriftin miðast við forréttastærð og er þannig tilvalin á hátíðarborðið, en ekkert er að því að stækka uppskriftina og hafa skammtana stærri.
Kjötið í súpuna má vera af læri, hrygg eða framparti. Allt eftir því hvað er til hverju sinni og súpan er tilvalin í að nýta afganga.
Skerið sveppi og gulrót í litla bita eftir smekk, steikið í olíu og smjöri og takið til hliðar.
Sjóðið upp á lambasoði og ediki og bætið sveppum og rjómanum við. Sjóðið í 5 mín og bætið kjötinu í. Sjóðið í 3-4 mínútur og smakkið til með salti.
Borið fram í skálum, ásamt brauðteningum, ostinn rífið þið yfir í lokin.
Mynd og uppskrift: islensktlambakjot.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt3 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFjölbreyttar keppnir þegar Hótel- og matvælaskólinn fagnar 30 árum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn8 klukkustundir síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni




