Vertu memm

Vín, drykkir og keppni

Elsta víngerð í Ástralíu fagnaði tæplega tveggja alda afmæli

Birting:

þann

Elsta víngerð í Ástralíu fagnaði tæplega tveggja alda afmæli - Yalumba

Yalumba

Elsta fjölskyldurekna víngerð í Ástralíu, Yalumba, hélt upp á 175 ára afmæli sitt nú í vikunni og fagnaði þar með tæplega tveggja alda sögu í víngerð.

„Dagurinn í dag hefur verið dýrmæt reynsla fyrir teymið okkar, þar sem við höfum átt virkan þátt í að stuðla að sjálfbærri framtíð,“

sagði Louisa Rose, víngerðarmaður Yalumba í tilkynningu.

Elsta víngerð í Ástralíu fagnaði tæplega tveggja alda afmæli - Yalumba

Louisa Rose, víngerðarkona

„Hópurinn okkar býr yfir fjölbreyttum hæfileikum og hlutverkum, og það er sérstakt fyrir hvern og einn að leggja sitt af mörkum til landsins, sérstaklega þá sem ekki taka venjulega þátt í daglegum störfum í vínekru okkar.“

„‘Signature‘-vínekra okkar, með útsýni yfir Barossa-dalinn, er enn tiltölulega ung og gróðursett með Cabernet og Shiraz. Við leggjum mikla áherslu á að gróðursetja á gróðursvæði í kringum allar vínekrur okkar til að styðja við líffræðilega fjölbreytni og bæta heilsu vínviðanna.

Þessi vínekra mun gegna lykilhlutverki í framtíð okkar, þar sem hún veitir þrúgur í eitt þekktasta vín okkar, Yalumba The Signature.“

Sagði Louisa Rose en starfsfólk víngerðarinnar gróðursetti tré á „Signature“-vínekrunni á sjálfum afmælisdeginum.

175. afmælisár Yalumba hefur einkennst af nýjum vínum, en fyrr á árinu kynnti Yalumba vín úr safni sínu með takmörkuðu úrvali af frábærum uppskerum bestu vína sinna, sem hafa verið geymd í allt að 20 ár.

Elsta víngerð í Ástralíu fagnaði tæplega tveggja alda afmæli - Yalumba

Afmælisvín Yalumba

Til að minnast afmæli Yalumba þá gaf víngerðin út takmarkað afmælisvín, blöndu af Shiraz og Grenache, sem endurspeglar karakter og arfleifð Yalumba og Barossa. Þrúgurnar eru teknar frá nokkrum af elstu vínekrum Barossa, sem eru frá árabilinu 1854 til 1920. Þetta vín verður fáanlegt í magnum flöskum frá og með 17. nóvember sl., sem gefur vínunnendum tækifæri til að njóta á þessu sögufræga víni.  Sjá nánar í vefverslun Yalumba hér.

Afmælis árgangur Yalumba í magnum flöskunum er á 175 ástralska dollara eða rétt rúmlega 15 þúsund ísl. kr.

Myndir: yalumba.com

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið