Markaðurinn
Verið velkomin á bás Iðunnar á Stóreldhúsið 2024 í Laugardalshöll 31. október – 1. nóvember
Iðan í hnotskurn
Iðan er fræðslusetur í iðnaði og sinnir meðal annars símenntun starfsmanna í matvæla- og veitingagreinum. Námsframboðið er fjölbreytt og í stöðugri þróun enda er það þýðingarmikið hlutverk að sjá fyrirtækjum og einstaklingum fyrir nýrri þekkingu og færni eftir því sem þörf krefur.
Markviss ráðgjöf og stuðningur til fyrirtækja og einstaklinga.
Náms- og starfsráðgjafar okkar sérhæfa sig í að aðstoða einstaklinga við raunfærnimat, náms- og starfsval og framkvæmd áhugasviðskannana.
Margvísleg þjónusta við iðnfyrirtæki og starfsmenn þeirra.
Iðan sinnir fjölbreyttum verkefnum eins og mati og viðurkenningu á erlendu námi og greiningu á fræðsluþörfum fyrirtækja. Einnig sér Iðan um framkvæmd sveinsprófa í fjölmörgum greinum.
Þróun og nýsköpun
Iðan fræðslusetur er í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir um þróun og nýsköpun innan iðnaðarins, til að mynda þegar kemur að námsefnis, nýjum kennsluaðferðum og tækifærum til fræðslu- og þjálfunar erlendis. Rík áhersla hefur verið lögð á erlend samvinnuverkefni með það að markmiði að styðja við fagfólk og iðnnema til að sækja sér þekkingu og deila reynslu sinni í löggiltum iðngreinum. Í flestum tilfellum eru námsferðir og samvinnuverkefni styrkt af Erasmus+, EEA – Grants og Norrænu ráðherranefndinni.
Fræðslustyrkir til fyrirtækja og einstaklinga.
Fyrirtæki sem greiða endurmenntunargjöld til Iðunnar og eru í skilum eiga rétt á að sækja um fræðslustyrki vegna náms og fræðslu starfsmanna.
Endilega kíktu til okkar, við tökum vel á móti þér.
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana




