Frétt
Met slegin í júlí og ágúst – Íslendingar kaupa fleiri gistinætur en fyrir heimsfaraldur
Seldum gistinóttum á Norðurlandi heldur áfram að fjölga, en samkvæmt tölum frá Hagstofunni var slegið met í júlí og ágúst.
Þetta er í samhengi við þróunina í maí og júní , en sérstaka athygli vekur fjölgun gistinátta í ágúst sem sýnir enn betur þá þróun að sumartímabilið er orðið lengra og teygir sig nú frá maí og vel inn í september. Þar spilar aukið millilandaflug um Akureyrarflugvöll lykilhlutverk, segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.
Íslendingar hafa áfram nýtt sér tækifærin sem felast í enn öflugri ferðaþjónustu, því gistinóttum þeirra hefur fjölgað umtalsvert frá því sem var fyrir heimsfaraldur. Í júlí voru gistinæturnar til dæmis tæplega 60% fleiri en árið 2018 og í ágúst voru þær rúmlega í 145% fleiri en árið 2018.
Íslendingum á ferðalagi um Ísland hefur því ekki fækkað frá því sem áður var, ef ekki er tekið mið af árunum 2020-2021 sem voru verulega lituð af heimsfaraldrinum.
Nýting hótel herbergja hefur farið upp á við og var rúmlega 80% í júlí og 83% í ágúst. Næg tækifæri eru til staðar til að taka á móti fleira ferðafólki yfir sumarið og til að nýta þau er samstaða ferðaþjónustufyrirtækja, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila mikilvæg.
Í því samhengi má nefna að nú er verkefnið Straumhvörf að hefjast, sem snýst um vöruþróun í ferðaþjónustu í tengslum við millilandaflug á Norður- og Austurlandi. Verkefnið er samstarfsverkefni Markaðsstofu Norðurlands, Austurbrúar og samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra.
Verkefnið verður kynnt á opnum Teams fundi fimmtudaginn 12. október klukkan 10.
-
Keppni7 dagar síðanSkráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
-
Markaðurinn6 dagar síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Starfsmannavelta3 dagar síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanDuck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
-
Keppni3 dagar síðanAuddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýtt hjá Garra: Mabrúka, handgerð krydd frá Túnis
-
Markaðurinn4 dagar síðanÞarf alltaf að kaupa nýtt?







