Pistlar
Ferðaþjónustufólk kemur saman
Í upphafi hvers árs er mikið um að vera hjá ferðaþjónustufólki sem kemur saman til að ráðfæra sig við hvert annað, finna nýjar hugmyndir og skapa verðmæti. Mannamót Markaðsstofa landshlutanna er haldið í Kópavogi og samhliða því er heil vika af spennandi viðburðum með mismunandi áherslum.
Þar er meðal annars rætt um tækniþróun, ráðstefnur, sjálfbærni og auðvitað markaðssetningu. Nú eru liðin 11 ár frá því að hugmyndin um Mannamót varð til í einu af mörgum samtölum Markaðsstofanna um hvernig mætti efla íslenska ferðaþjónustu og vinna að dreifingu ferðafólks um landið.
Þessi hugmynd um að skapa vettvang fyrir landsbyggðarfyrirtækin til að koma saman í höfuðborginni og eiga þar fundi með ferðaþjónustunni er nú orðin að stærsta kynningarviðburði ferðaþjónustunnar og farin að vekja áhuga erlendra ferðaskrifstofa.
Markaðssetning til lengri tíma er mikilvæg. Til þess að efla ferðaþjónustuna í verðmætasköpun þarf að tala saman, vinna í sömu átt og segja frá Íslandi. Náttúran er okkar stóra aðdráttarafl og hefur náðst að kynna vel hversu stórfengleg hún er á öllum tímum ársins.
Þjónusta er að byggjast upp jafnt og þétt til að taka á móti ferðafólkinu og er jákvætt að sjá í nýjustu tölum um fjölda ferðamanna hvernig vetrarferðaþjónustan er að sækja í sig veðrið enda er næg þjónusta í boði á þeim árstíma og mikil tækifæri til að nýta fjárfestinguna betur og skapa heilsársstörf.
Ferðaþjónustan er byggð upp af öflugu fólki, frumkvöðlum sem hafa sýnt af sér mikla þrautseigju og hugmyndaauðgi. Þessi hópur sem kemur úr öllum áttum er grunnurinn að stærstu atvinnugrein landsins þegar horft er til landsframleiðslu.
Þessi atvinnugrein skilar ekki eingöngu verðmætum inn í landið heldur byggir upp mikil lífsgæði fyrir íbúa með uppbyggingu þjónustu um allt land. Það er ekki sjálfgefið að ná þeim árangri sem Ísland hefur náð undanfarin ár í þróun og markaðssetningu ferðaþjónustunnar.
Fagmennska, menntun, stöðug þróun og öflug markaðssetning er lykillinn að árangri og þessu fögnum við saman á Mannamótum og í ferðaþjónustuvikunni.
Höfundur er Arnheiður Jóhannsdóttir, talsmaður Markaðsstofa landshlutanna og framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn2 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Frétt6 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt5 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni1 dagur síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn1 dagur síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt6 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins



