Viðtöl, örfréttir & frumraun
Ragnar Ómarsson í nærmynd
Ragnar Ómarsson er án efa einn af okkar betri matreiðslumönnum hér á Íslandi, já og ef lengra væri leitað, því að Ragnar var fulltrúi Íslands í Bocuse d´Or 2005 og náði þeim feikna góða árangri að næla sér í 5. sæti. Hann hefur unnið á ýmsum veitingastöðum í Frakklandi og Bandaríkjunum.
Þegar heim var komið varð hann yfirmatreiðslumaður á Hótel Holti og þess má geta að Holtið var einn af styrktaraðilum hans í Bocuse d´Or keppninni. Ragnar gekk i Landslið Íslands í matreiðslu árið 1999 og er ennþá
virkur þátttakandi í sigursælustu landsliði hingað til. Ragnar hlaut titilinn Matreiðslumaður ársins árið 1999 og aftur árið 2002. Árið 2003 hlaut hann svo titilinn Matreiðslumaður Norðurlanda.
Lagðar voru nokkrar spurningar fyrir Ragnar, sem hann svaraði með léttu yfirbragði, enda skemmtilegur karakter, líkt og sannur matreiðslumaður á að vera.
Fullt nafn?
Ragnar Ómarsson
Eiginkona?
Erla Snorradóttir
Börn?
María Lív Ragnarsdóttir (7 ára)
Bíll?
VW Golf 2004 módel (eðalvagn)
Hvar ertu að vinna núna?
SALT veitingarhús í gamla Eimskipshúsinu
Hvaða kokkar eru að vinna með þér?
Baldur Guðbjörns (Baldur bolla,,enn hann er í átaki,,, segir hann allavega!)
Jóhannes Jóhannesson (Jói hnefi)
Johan Andersson (Jói sænski)
Jónas Jónasson (jónas)
síðan fjórir nemar
Sáttur með launin?
Er maður einhvern tímann sáttur!
Hvar lærðir þú kokkinn?
Glóðinni í Keflavík
Hvað hét, fyrsta hnífasettið sem þú eignaðist?
Það var F.Dick-hnífar sem hafa horfið hægt og rólega,,,enn voru fínir þá!
Ætlarðu að opna þitt eigið veitingahús?
Veit ekki ,,,er nú búinn að prófa að reka eitt og skeit á mig.
Hvað er góður matur?
Allt það æta hráefni sem er rétt eldað, rétt kryddað og lítur vel út.
Uppáhalds Íslenski kokkur?
Kalli sem var kokkur á Glóðinni þegar ég var að læra og er nú eigandi á Móðir Náttúra, það kalla ég snilling í eldhúsi!!
Nú er Friðgeir Eiríksson næsti fulltrúi Íslands í Bocuse d´Or 2007, kemur þú til með að aðstoða hann?
Já að sjálfsögðu, ef hann hefur einhvern áhuga á að fá mann sem náði bara 5 sæti.til að hjálpa sér þá geri ég það
Hvaða stöðu gegnirðu í Kokkalandsliðinu?
Spilandi Landsliðsþjálfari, ásamt Bjarna í Grillinu
Hverjir eru í liðinu?
- Bjarni Gunnar Kristinsson, Grillið
- Ragnar Ómarsson, SALT
- Alfreð Ómar Alfreðsson, G.V heildverslun
- Sigurður Gíslason, VOX
- Gunnar Karl Gíslason, B5
- Eyþór Rúnarsson, Siggi Hall óðinsvéum
- Hrefna Rós Jóhannesdóttir Sætran, Sjávarkjallarinn
- Örvar Birgirsson, Nýja Kökuhúsinu
Aðstoðarmenn:
- Gunnlaugur, Sjávarkjallarinn
- Jónas Oddur Björnsson, VOX
Sérlegur ráðgjafi: Ásgeir Sandholt
Hvað er framundan hjá Kokkalandsliðinu?
Heimsmeistarkeppninn í Luxemborg í lok Nóvember og náttúrulega æfingarnar sem fara núna fram í Hótel og matvælaskólanum , þar sem við erum komin með flotta aðstöðu þar og erum í samstarfi við skólann.
Við þökkum Ragnari kærlega fyrir spjallið.
Myndartaka:
Freisting.is og
Bjarni G. Kristinsson
-
Markaðurinn2 dagar síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni3 dagar síðanÞrjátíu ár við stjórnvölinn – Bjarki Hilmarsson heiðraður
-
Keppni2 dagar síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý hnífataska frá Beittum hnífum
-
Markaðurinn2 dagar síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
-
Markaðurinn2 dagar síðanMata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi
-
Vín, drykkir og keppni5 klukkustundir síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna






