Markaðurinn
Telma ráðin COO hjá SalesCloud
Telma Eir Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin COO hjá SalesCloud og hefur hún þegar hafið störf. Telma mun bera ábyrgð á daglegum rekstri fyrirtækisins, mannauðsmálum og upplýsingagjöf til stjórnar.
Telma starfaði áður sem framkvæmdastjóri Sambands íslenskra framhaldsskólanema og Félags viðskipta- og hagfræðinga ásamt því að sinna stjórnarsetu. Hún er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst. Eiginmaður Telmu er Eyþór Mar Halldórsson og eiga þau einn son.
Telma Eir Aðalsteinsdóttir, COO hjá SaleCloud:
„Það er einstaklega spennandi að ganga til liðs við SalesCloud á þessum tímapunkti þegar fyrirtækið er að ganga í gegnum mikinn vöxt.
Ég þekkti félagið vel frá sjónarhóli viðskiptavinar og vissi að vörur félagsins bjóða upp á fjölmarga möguleika þegar kemur að greiðslulausnum en það er mjög gaman að kynnast félaginu upp á nýtt innan frá og þá sérstaklega að komast að því hversu ríkt það er af mannauði.
Næstu mánuðir verða viðburðaríkir hjá SalesCloud þar sem fjölgun í starfsliði, aukið vöruúrval og sókn á erlenda markaði munu spila lykilhlutverk“.
Helgi Andri Jónsson, CEO hjá SalesCloud:
„Ég er mjög stoltur af því að fá Telmu inn í teymið. Á skömmum tíma hefur hún þegar haft mjög jákvæð áhrif á teymið og fyrirtækið sjálft. Ég er viss um að við séum mun líklegri til að ná öllum markmiðum okkar með Telmu í stjórnendateyminu.“
SalesCloud tryggði sér fyrr á árinu yfir 500 milljóna króna fjármögnun frá SaltPay og hópi íslenskra fjárfesta. Fyrirtækið býður upp á lausnir sem auðvelda litlum og meðalstórum fyrirtækjum að auka sölu í verslunum og á netinu, með öflugu sölukerfi í skýinu, sem hefur innbyggðar lausnir á borð við kassakerfi, vefsölu í gegnum heimasíður, bókanir og sjálfsafgreiðslu – svo eitthvað sé nefnt.
-
Markaðurinn5 dagar síðanGabríel Kristinn leiðir nýja matarupplifun á Suðurlandi
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFagmenn úr veitingageiranum hrósuðu matreiðslunemum VMA í hástert – Myndir
-
Frétt5 dagar síðanBrotist inn á veitingastaðinn Glóstein – Kannast einhver við manninn sem braust inn?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÞórir: „Allir eiga að fá tækifæri“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun15 klukkustundir síðanÍslenskur matreiðslumeistari leiðir Chefs Without Borders
-
Markaðurinn4 dagar síðanHótel Laugarbakki og Hótel Blönduós óska eftir eldhússtarfsfólki í sumar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHallgrímur Friðrik og Kristján Magnússon heiðraðir af KM
-
Keppni3 dagar síðanSkráning er hafin fyrir næsta Arctic Young Chef



