Frétt
Ertu að fara halda viðburð? Nýtt smáforrit fyrir viðburðahaldara
Embætti landlæknis hefur gefið út nýtt smáforrit sem hefur fengið heitið Skanni C-19. Tilgangurinn er að auðvelda viðburðahöldurum að staðfesta að vottorð um neikvæða niðurstöðu skimunar fyrir COVID-19 sé gilt, að því er fram kemur á vef embættis landlæknis.
Skanni C-19 er sérstaklega hannað til að auðvelda dyravörðum og öðrum sem sinna gæslu fyrir viðburði að sannprófa gildi vottorða á einfaldan og fljótvirkan hátt. Skanni C-19 les QR-kóða vottorðsins, hvort sem er af skjá eða af pappír, og staðfestir hvort vottorðið sé gilt eða ekki.
Þar sem Skanni C-19 er sérhannaður vegna takmarkana á fjöldasamkomum þá munu einungis þau vottorð teljast gild í Skanna C-19 forritinu sem staðfesta neikvæða niðurstöðu úr skimun fyrir COVID-19 (PCR-og hraðpróf). Bólusetningarvottorð, eða vottorð um fyrri veikindi, munu ekki teljast gild í forritinu.
Ef vottorðið er gilt þá birtist grænn flötur á skjáinn, en annars rauður flötur. Skanni C-19 les einnig nafn og fæðingardag vottorðshafans þannig að hægt sé að tengja vottorðshafa við önnur persónuskilríki.
Öll COVID-19 vottorð sem gefin eru út hér á landi með QR-kóða eru samræmd við evrópsku EU Digital COVID Certificate (EU DCC) vottorðin. Skanni C-19 mun því geta lesið COVID-19 vottorð frá þeim löndum sem gefa út EU DCC vottorð, en nú eru þau orðin 43 talsins.
Skanni C-19 geymir engar upplýsingar úr QR-kóða vottorðsins. Sannprófun á vottorðinu fer fram í smáforritinu sjálfu svo það þarf ekki tengingu við ytra kerfi þegar QR-kóðinn er lesinn og staðfestur.
Skanni C-19 er í boði ókeypis í smáforritaverslunum Play Store hjá Google og App Store hjá Apple.
Mynd: landlaeknir.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndir: Veislusýning Múlabergs fór fram úr væntingum
-
Keppni5 dagar síðanSkráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanMyndir: Bakaradeildin í Hótel- og matvælaskólanum tók þátt í Tyllidögum
-
Frétt6 dagar síðanGrunur um salmonellu í kjúklingalærum frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn5 dagar síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Starfsmannavelta1 dagur síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanDuck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík





