Sverrir Halldórsson
Kvöldstund í Hörpunni 2 | „..það var sæll og ánægður listunnandi sem yfirgaf Hörpuna..“
Nú var ég aftur mættur í tónlistarhöllina til að eiga góða kvöldstund og skyldi hún byrja á að smakka Indverskan matseðillinn að hætti Yesmin Olson sem var gestakokkur í nóvembermánuði í Munnhörpunni.
Nýr yfirmatreiðslumaður hefur tekið við keflinu í Munnhörpunni en hún heitir Kristín Steinarsdóttir. Mér var vísað á borð og boðið að panta drykk, sem ég þáði, leit yfir matseðillinn og sagði þjóninum að eldhúsið réði ferðinni.
Fyrst kom volgt Nanbrauð með smjöri, fantagott og lofaði góðu fyrir framhaldið.
Svo kom Mulligatawny súpa sem er karrýlöguð grænmetissúpa með eplateningum.
Smakkaðist hún virkilega vel, en þó passlega sterk og nanbrauðið gaf fyllinguna.
Svo kom Indverskt Lambaprime sem er vellt upp úr stökkum hnetum, framreitt með chilli-engifer kartöflum og döðluchutney.
Þetta var sko indverskt upp á 10, mýktin í kjötinu glæsileg og frekar sterkt, svo var framsetning á réttinum girnileg, flott vinna.
Þetta var virkilega bragðgóður ábætir og góður endir á kvöldverðinum og rúsínan í pylsuendinum var súkkulaðitrufflan, þá fóru bragðkirtlarnir virkilega á flug.
Þá þakkaði sæll maður fyrir sig og næst var að fara upp á 3. hæð í sæti F9 sama sæti og síðast og nú skyldi hlusta á Todmobile í 25 ár og gest þeirra Jon Anderson fyrrum söngvara Yes og þegar þau fluttu lagið OWNER OF THE LONLEY HEART, ætlaði þakið bóstaflega að rifna af, þvílík stemming var í Eldborginni.
Þetta toppaði allt sem ég hef séð og heyrt á tónleikum og það var sæll og ánægður listunnandi sem yfirgaf Hörpuna í annað sinn á einni viku, mettur í maga og heila.
![]()
-
Keppni15 klukkustundir síðanKosning hafin, hver hlýtur titilinn Kokkur ársins 2026?
-
Keppni1 dagur síðanFimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
-
Keppni3 dagar síðanGull og silfur til Íslands á Norðurlandamótinu í matreiðslu – Myndir
-
Frétt4 dagar síðanSvangur þjófur braust inn í Almars bakarí í Hveragerði
-
Keppni12 klukkustundir síðanLesendakönnun, hver verður Grænmetiskokkur ársins 2026?
-
Keppni12 klukkustundir síðanFimm keppendur takast á um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanPáskatilboð sem þú vilt ekki missa af
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLokahóf Kokks ársins 2026

















